Íslensku keppendurnir unnu til níu verðlauna á Smáþjóðaleikunum í San Marinó í gær.
Ísland er nú með 22 gull, 13 silfur og 15 brons og í 2. sæti á verðlaunatöflunni með samtals 50 verðlaunapeninga. Lúxemborg er í fyrsta sæti með 81 verðlaunapening.
Sund
Íslenska boðsundssveitin vann til gullverðlauna í 4x100 metra skriðsundi kvenna. Bryndís Rún Hansen, Hrafnhildur Lúthersdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Bryndís Bolladóttir syntu á tímanum 3:49,24 sekúndum.
Hrafnhildur vann til gullverðlauna í 400 metra fjórsundi á tímanum 4:55,05 sekúndum.
Davíð Aðalsteinsson, Kristófer Sigurðsson, Aron Stefánsson og Kristinn Þórarinsson unnu til silfurverðlauna í 4x100 metra skriðsundi karla. Þeir syntu á tímanum 3:27,39 sekúndum og settu þar með nýtt landsmet.
Körfubolti
Kvennalandsliðið í körfubolta tryggði sér silfurverðlaun með 59-44 sigri á Lúxemborg. Þetta er í fimmta sinn í röð sem íslenska kvennalandsliðið vinnur til silfurverðlauna á Smáþjóðaleikunum. Nánar má lesa um leikinn með því að smella hér.
Bogfimi
Helga K. Magnúsdóttir vann til gullverðlauna í bogfimi með trissuboga. Hún bar sigurorð af keppanda frá Lúxemborg í úrslitum, 140-129.
Margrét Einarsdóttir vann brons í bogfimi með trissuboga. Hún vann keppanda frá San Marínó, 137-133.
Tvær íslenskar bogfimisveitir, karlasveit og blönduð sveit, unnu til bronsverðlauna.
Blandaða sveitin vann San Marínó 151-148 og karlasveitin vann Kýpur, 330-222.
Hjólreiðar
Erla S. Sigurðardóttir vann til bronsverðlauna í fjallahjólreiðum. Erla hjólaði á 64 mínútum. Erla vann til silfurverðlauna í götuhjólreiðum á þriðjudaginn og er því komin með tvenn verðlaun á Smáþjóðaleikunum.
Íslenska karlaliðið, sem er skipað Bjarka Bjarnasyni, Gústaf Darrasyni og Ingvari Ómarssyni, vann til bronsverðlauna í liðakeppni í fjallahjólreiðum. Íslenska liðið kom í mark eftir fjórar klukkustundir, átta mínútur og 15 sekúndur og var 16 mínútum á eftir San Marínó sem vann keppnina.
Sport