Nýársátakið hafið: Sjö þúsund mættu í World Class í gær en toppnum ekki náð Birgir Olgeirsson skrifar 3. janúar 2017 12:40 Björn Leifsson, eigandi World Class. Vísir/GVA
Sjö þúsund manns mættu í líkamsræktarstöðvar World Class í gær, á fyrsta virka degi ársins. Ætla má að margir hafi strengt sér áramótaheit um að komast í betra form á nýju ári og mátti sjá fjölda fólks í líkamsræktarstöðvum í gær. Björn Leifsson, eigandi World Class, segir í samtali við Vísi að gærdagurinn sé ekki toppurinn á árinu í World Class þegar kemur að mætingu. Toppurinn nær allajafna hámarki seinni partinn í mars. „Þetta virkar alltaf meira í byrjun janúar því þá er fólk mikið að koma á sama tíma,“ segir Björn.30% fleiri í World Class Handhafar líkamsræktarkorta í World Class eru um 30 prósent fleiri í dag en fyrir ári. Það eru því um 7.000 fleiri handhafar líkamsræktarkorta í World Class í dag en voru fyrir ári, en þar af eru 2.500 á Selfossi. Á fyrsta virka degi ársins bættust 538 nýir korthafar við hópinn en Björn segir að það sé algengt að þau hjá World Class selji um tvö til þrjú hundruð kort á dag fyrstu vikurnar á árinu. „Þetta er orðinn það stór kúnnahópur. Við erum með 30 þúsund virk kort og því er það kannski ekkert rosalega mikið að fá á þrjú hundruð kort á dag því svo dettur annað út á móti,“ segir Björn.Mikil aukning hjá eldra fólki Hann segist verða var við mikinn líkamsræktaráhuga í samfélaginu. „Við erum að sjá gríðarlega mikla aukningu hjá eldra fólki. Svo virðumst við vera að ná unga hópnum eins og hann leggur sig. Öll umræðan í þjóðfélaginu hefur verið í þessa átt,“ segir Björn. Hann nefnir einnig að World Class hefur ekki hækkað gjöld í þrjú ár. „Þannig að þetta er orðið mjög ódýrt miðað við Norðurlöndin. Og ég tala nú ekki um miðað við það sem er boðið upp á, við erum með aðgang að sex sundlaugum án aukagjalds,“ segir Björn.Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins.Vísir/Anton BrinkStóra törnin fer í gang í næstu viku Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins, segir nokkuð mikla umferð hafa verið í Sporthúsið í Kópavogi í gær en stóra törnin fari ekki gang fyrr en í næstu viku þegar öll námskeiðin byrja. Hann segir það árlegan viðburð að handhöfum líkamsræktarkorta fjölgi í byrjun árs en þetta sé orðið mun jafnara yfir árið í dag þar sem fólk er með fasta samninga og borgar mánaðarlega af þeim. Þröstur segist hafa verið níu ár í líkamsræktarbransanum og hefur á þeim árum stöðugt fundið fyrir meiri líkamsræktaráhuga á meðal Íslendinga. „Það stunda mun fleiri líkamsrækt í dag en gerðu fyrir tíu árum,“ segir Þröstur og nefnir að með tilkomu fleiri líkamsræktarstöðva hafi samkeppnin aukist gríðarlega. Reynt var að nálgast samskonar upplýsingar hjá líkamsræktarstöðvunum Reebok Fitness og Hreyfingu en ekki höfðu borist svör þegar þetta er ritað. Ekki lágu fyrir upplýsingar hjá Mjölni þegar eftir því var leitað.
Mest lesið Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Innlent Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Erlent Mikið tjón eftir að herbergið fylltist af vatni Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Erlent Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Erlent Ferðaþjónusturisi kaupir Fjaðrárgljúfur Viðskipti innlent Vilja losna við bækur með grófu kynferðisofbeldi Innlent Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Erlent Hættir við að hætta og vill fimm ár í viðbót á RÚV Innlent Halla talar ensku við kónginn: „Ég held að það sé kannski nýi tíminn“ Innlent Fleiri fréttir Óeðlilegt að Guðmundur Ingi hafi hringt í ríkislögreglustjóra Beðið eftir dómi í máli Alberts Komugjald í brjóstaskimun lækkar gríðarlega Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu Halla talar ensku við kónginn: „Ég held að það sé kannski nýi tíminn“ Lukkuriddari kannana mætir í Samtalið Mikið tjón eftir að herbergið fylltist af vatni Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Vilja 62 milljónir til að tryggja vopnabirgðir lögreglu og sérsveitar „Hófleg snjókoma og ólíklegt að þetta setjist á vegi“ Vilja losna við bækur með grófu kynferðisofbeldi Hættir við að hætta og vill fimm ár í viðbót á RÚV Foreldrar í Laugalækjarskóla uggandi yfir mögulegu verkfalli Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Stefna á að opna sundlaugar í Reykjavík í fyrramálið Ísland í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna Vísa á bug kenningu um að stjórnarsamstarfið tóri á styrkveitingum Undraverður bati með háþrýstimeðferð Þurfa ekki að greiða vegna viðskiptavina sem borguðu ekki fyrir bílastæði Kvíðin í aðdraganda hamfara og spenna í þingheimi Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Árekstur á Eyrarbakkavegi Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Hæstánægð með Höllu Sjá meira