Johnson loksins kominn á toppinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. febrúar 2017 15:00 Dustin Johnson með bikarinn eftir sigurinn á Genesis Open um helgina. Vísir/Getty
Dustin Johnson bar sigur úr býtum á Genesis Open mótinu á PGA-mótaröðinni um helgina með fimm högga forystu á næsta mann. Með sigrinum tryggði hann sér efsta sæti heimslistans í golfi í fyrsta sinn á ferlinum. Johnson er 20. kylfingurinn sem kemst á topp heimslistans síðan hann var fyrst settur á laggirnar árið 1986. Sigur Johnson um helgina var afar sannfærandi. Hann lék 49 holur í röð án þess að fá skolla en hann lék á 64 höggum á þriðja hring, sjö undir pari vallarins, og leit aldrei um öxl. Ferill Johnson hefur verið skrautlegur en það hefur aldrei verið efast um að þar fer mikill hæfileikamaður. Hann hefur unnið mót á PGA-mótaröðinni hvert ár á sínum ferli nema árið 2014, er hann tók sér hálfs árs hlé eftir að hafa fallið tvívegis á lyfjaprófi. Fullyrt hefur verið að hann hafi átt við eiturlyfjafíkn að stríða. Sjálfur hefur hann neitað því en viðurkennt að hafa ekki haft stjórn á drykkju sinni. Þetta var þrettándi sigur Johnson á tíu ára ferli á PGA-mótaröðinni. Hann tekur við efsta sæti heimslistans af Ástralanum Jason Day sem þurfti að sætta sig að vera í hópi þeirra neðstu sem komust í gegnum niðurskurðinn. Day hafði verið í 47 vikur í efsta sæti heimslistans en fær tækifæri til að hrifsa það aftur til sín þegar þeir mætast á nýjan leik í Mexíkó eftir tvær vikur.
Golf Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira