Sagði einhvern hafa spreyjað framan í sig Samúel Karl Ólason skrifar 14. febrúar 2017 23:13 Kim Jong Nam, var fluttur á sjúkrahús en lést á leiðinni. Vísir/AFP
Kim Jong Nam, hálfbróðir Kim Jong Un leiðtoga Norður-Kóreu, sagði læknum að ráðist hefði verið á sig með eiturúða. Hann hné niður á flugvelli í Kuala Lumpur í Malasíu í gær og var fyrst fluttur á heilsugæslustöð flugvallarins. Hann lést svo á leiðinni í sjúkrahús. Fjölmiðlar í Suður-Kóreu fullyrða að tvær konur, sem taldar eru vera útsendarar frá Norður-Kóreu, hafi ráðist á hann á flugvellinum. Konurnar eru sagðar hafa flúið í leigubíl og mun lögreglan í Malasíu vera að leita að þeim. Kim Jong Nam var í útlegð frá Norður-Kóreu eftir að hálfbróðir hans tók við völdum í einræðisríkinu árið 2011. Lengi vel var talið að hann myndi taka við af föður sínum, Kim Jong Il, en það olli mikilli hneykslan í heimalandinu þegar hann var stöðvaður við að reyna að lauma sér inn í Disneyland í Japan árið 2001. Lögreglan í Malasíu segir að vegabréf með nafninu Kim Chol hafi fundist á honum, en samkvæmt heimildum AP fréttaveitunnar er vitað til þess að Kim Jong Nam hafi ferðast undir þessu nafni. Talið er að hann hafi búið í Macau, Singapúr og Malasíu. Talið er líklegt að hann hafi verið myrtur vegna skipana frá bróður sínum Kim Jong Un, en fregnir hafa borist af því að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem ráðist hefur verið á hann.
Tengdar fréttir Hálfbróðir Kim Jong-un sagður hafa verið myrtur í Malasíu Suður-kóreskir fjölmiðlar segja útsendara Norður-Kóreustjórnar hafa eitrað fyrir Kim Jong Nam, sem var sonur fyrrverandi leiðtogans Kim Jong-il. 14. febrúar 2017 12:54 Mest lesið Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Erlent Lögreglumaður dæmdur fyrir að beita kylfu við handtöku Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Innlent Umfangsmikil uppbygging við andapollinn sé „stórlega ýkt“ Innlent Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Innlent Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Innlent Máttu ekki vísa mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár Innlent Bandaríkin muni semja Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Sjá meira
Hálfbróðir Kim Jong-un sagður hafa verið myrtur í Malasíu Suður-kóreskir fjölmiðlar segja útsendara Norður-Kóreustjórnar hafa eitrað fyrir Kim Jong Nam, sem var sonur fyrrverandi leiðtogans Kim Jong-il. 14. febrúar 2017 12:54