Erlent

Þrettán ára stúlka lést eftir að hafa kastast úr rússíbana

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Hér má sjá mynd af rússíbananum
Hér má sjá mynd af rússíbananum Vísir/skjáskot
Þrettán ára stúlka lést eftir að hafa fallið úr rússíbana í Chaohua Park skemmtigarðinum í Suð-Vestur Kína. Heimildir fregna að hún hafi dottið á járnhandrið og að hún hafi verið flutt samstundis á spítala þar sem hún hafi látist úr sárum sínum. BBC greinir frá.

Tækið var síðast skoðað í desember síðastliðnum og hefur nú verið tekið úr umferð. Garðinum hefur verið gert að greiða foreldrum stúlkunnar sekt en stúlkan var einkabarn. Garðinum hefur einnig verið gert að yfirfara öll sín tæki aftur til að koma í veg fyrir fleiri slys.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×