Segja engan fund vera skipulagðan Samúel Karl Ólason skrifar 15. janúar 2017 08:23 Vladimir Putin og Donald Trump. Vísir/EPA
Tveir aðstoðarmenn Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, segja fréttir af mögulegum fundi Trump og Vladimir Putin, forseta Rússlands, vera ósannar. Sunday Times héldu því fram á forsíðu sinni í dag að mögulega stæði til að halda slíkan fund í Reykjavík.Samkvæmt Reuters fréttaveitunni segir einn aðstoðarmaður að fréttin sé „fantasía“. Þá hefur Mbl eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra, að engin formleg beiðni eða erindi hafi borist til Íslands. Það hafði vakið mikla athygli að miðað við fréttirnar hefði fyrsta embættisferð Donald Trump verið farin til að funda með Putin. 17 leyniþjónustur Bandaríkjanna hafa haldið því fram að Rússland hafi beitt tölvuárásum, tröllum og öðrum aðferðum til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og hjálpa Trump að vinna.Trump hefur gefið í skyn að hann muni afnema þvinganir gegn Rússum, sem Obama setti á vegna árásanna. Ef Rússar myndu hjálpa Bandaríkjunum í baráttunni gegn Íslamska ríkinu og í öðrum verkefnum.Spicer denies report Trump wants meeting with Putin in Iceland https://t.co/UvNsI6bQPz— Fox News (@FoxNews) January 15, 2017 not true - report is 100% false #facts https://t.co/nDSqknFD3R— Sean Spicer (@seanspicer) January 15, 2017
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Sjá meira