Ágústa Katrín Auðunsdóttir hefur verið ráðin í stöðu sérfræðings á fjármálasviði Eignaumsjónar.
Í tilkynningu segir að henni sé ætlað að efla enn frekar starfsemi félagsins, sem hafi sérhæft sig í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög með það að markmiði að gera rekstur fasteigna markvissari og ódýrari, auka upplýsingaflæði og auðvelda störf eigenda og hússtjórna.
„Ágústa er með MCF - meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík og BSc - gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á reikningshald. Hún kemur til Eignaumsjónar frá Nordic Visitor, þar sem hún sinnti einnig sérfræðistörfum á fjármálasviði. Þar á undan var hún bókhaldsfulltrúi hjá Lyfju.
Fjármálasvið er eitt þriggja meginstarfssviða Eignaumsjónar og mun Ágústa jöfnum höndum sinna þjónustu við ört fjölgandi viðskiptavinahóp félagsins og greiningarvinnu til stjórnenda,“ segir í tilkynningunni.
Águsta ráðin til Eignaumsjónar
Atli Ísleifsson skrifar

Mest lesið

„Sjóðurinn er gjaldþrota og því falla kröfurnar á ríkið“
Viðskipti innlent

Heiðrún Lind í stjórn Sýnar
Viðskipti innlent

Óvænt verkföll á flugvöllum í Þýskalandi hafa víðtæk áhrif
Viðskipti erlent

Sækja 540 milljarða til að gera upp skuldir ÍL-sjóðs
Viðskipti innlent


Góð ráð: Draumastarfið á draumavinnustaðnum
Atvinnulíf



Sjálfkjörið í stjórn Símans
Viðskipti innlent

Konur oft einangraðar í karllægu umhverfi eldhúsanna
Viðskipti innlent