Eiður Smári ekki hættur og útilokar ekki að fara til Indlands Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. maí 2017 09:24 Eiður Smári Guðjohnsen er ekki hættur. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins frá upphafi, gæti hugsað sér að spila í indversku ofurdeildinni á þessu ári eins og til stóð í fyrra. Eiður var búinn að semja við indverska liðið FC Pune City en meiddist á ökkla fyrir æfingaferð með liðinu til Spánar og þurfti að hætta við ævintýraferð til Indlands. „Ég útiloka það ekki. Ég hef ekki formlega lagt skóna á hilluna,“ segir Eiður í viðtali við Sky Sports en hann spilaði síðast fyrir Molde í Noregi á síðasta ári. „Ég er búinn að vera atvinnumaður í 23 ár en ég hef notið tímans frá fótboltanum síðustu mánuði. Ég held samt öllu opnu. Það voru mikil vonbrigði fyrir mig að spila eki á síðasta ári. Þetta var eitthvað nýtt fyrir mig og öðruvísi.“ Átta lið eru í indversku deildinni og hefur aðeins tekið átta vikur að klára hana frá stofnun deildarinnar árið 2014. Nú verður tímabilið aðeins lengra þar sem að minnsta kosti eitt lið til viðbótar bætist í hópinn. Deildin hefst í október eftir að Indland heldur sitt fyrsta mót á vegum FIFA en HM U17 ár landsliða fer þar fram í október. Eiður Smári sér fram á betri tíma í indverskum fótbolta á næstu árum en A-landslið þjóðarinnar setti met á síðasta FIFA-lista þar sem það er í 100. sæti. „Indland á enn þá eitthvað í land þegar kemur að umgjörð og fjárfestingu í fótboltanum en áhuginn virðist vera til staðar. Krikket verður alltaf aðal íþróttin í Indlandi en áhuginn á fótboltanum er að aukast,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen.
Fótbolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira