Enski boltinn

Markvörður Sunderland eftirsóttur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pickford hefur staðið sig vel í vetur.
Pickford hefur staðið sig vel í vetur. vísir/getty
Nokkur lið í ensku úrvalsdeildinni líta hýru auga til Jordans Pickford, markvarðar Sunderland.

Pickford hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á þessu tímabili. Þessi 22 ára gamli markvörður hefur verið besti leikmaður Sunderland í vetur ásamt Jermain Defoe.

Pickford stóð sig vel þegar Sunderland tapaði 2-0 fyrir Everton á Goodison Park um síðustu helgi.

Everton er einmitt eitt þeirra liða sem hefur áhuga á Pickford. Arsenal, Manchester City og Liverpool ku einnig vera áhugasöm um markvörðinn efnilega.

Pickford og félagar í Sunderland fá Manchester City í heimsókn á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×