Theresa May orðin völt í sessi Atli Ísleifsson skrifar 12. nóvember 2017 09:49 Theresa May tók við formennsku í Íhaldsflokknum af David Cameron árið 2016. Vísir/afp
Fjörutíu þingmenn breska Íhaldsflokksins hafa nú lýst því yfir að þeir hafi misst tiltrú á að Theresa May sé rétta manneskjan til að leiða flokkinn og landið. Ákveði átta þingmenn til viðbótar að gera slíkt hið sama kann það að leiða til formlegrar atkvæðagreiðslu um stöðu May í stóli formanns flokksins. Alls eru þingmenn Íhaldsflokksins 315 talsins. Sky greinir frá. Tveir ráðherrar í bresku ríkisstjórninni hafa sagt af sér á síðustu dögum; varnarmálaráðherrann Michael Fallon vegna ásakana um kynferðislega áreitni og þróunarmálaráðherrann Priti Patel vegna leynifunda hennar með fulltrúum ísraelskra stjórnvalda. Staða May innan flokksins hefur veikst eftir að Íhaldsflokknum mistókst að styrkja stöðu sína í þingkosningunum í sumar. Þá hafa Brexit-viðræður við Evrópusambandið gengið hægt. Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands, hefur sömuleiðis talsvert verið í umræðunni eftir að hann tjáði sig óvarlega um stöðu bresk-íranskrar konu sem nú situr í fangelsi í Íran. Auk þess stendur rannsókn yfir vegna ásakana á hendur aðstoðarforsærisráðherranum Damian Green um kynferðislega áreitni. Komi til atkvæðagreiðslu um formennsku May og verði hún undir, mun nýr maður taka bæði við formennskunni í flokknum og embætti forsætisráðherra.
Mest lesið Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Sjá meira