Lífið

Falleg íslensk heimili: Líttu inn í spákonuhúsið glæsilega í Garðabæ

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega smekkleg eign.
Virkilega smekkleg eign.
Nýr íslenskur þáttur hóf göngu sína á Stöð 2 fyrir nokkrum vikum og heitir hann Falleg íslensk heimili.

Þar fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni. Að þessu sinni fóru sérfræðingarnir í spákonuhúsið svokallaða í Garðabæ.

Blikanesið er byggt á stórri hornlóð á Arnarnesi í Garðabæ. Þar búa þau Sigurður Gísli Björnsson og Hugrún Harðardóttir ásamt þremur börnum. Húsið var upphaflega reist árið 1966 og var kallað spákonuhúsið en þau Sigurður og Hugrún tóku það algjörlega í gegn árið 2008 á afar smekklegan hátt með þarfir fjölskyldunnar í huga.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.