Unnusti dæmdur sekur um morð á vinsælum breskum unglingabókahöfundi atli ísleifsson skrifar 22. febrúar 2017 13:41 Helen Bailey auðgaðist meðal annars á unglingabókum sínum um Electru Brown. Lögreglan í Hertfordskíri
Dómstóll í Bretlandi hefur sakfellt hinn 56 ára Ian Stewart fyrir morðið á unnustu hans, barnabókarithöfundinum Helen Bailey, fyrr á árinu. Stewart var dæmdur fyrir að hafa eitrað fyrir og kæft Bailey áður en hann kom líki hennar fyrir í falinni safnþró. Hann neitaði sök en grunur lék á að hann hafi myrt Bailey til að komast höndum yfir eignir Bailey sem metnar eru á fjórar milljónir punda, um 550 milljónir króna.BBC segir frá því að réttarhöldin hafi staðið í sjö vikur, en lögregla kveðst nú ætla að rannsaka nánar dauða Diane, fyrrverandi eiginkonu Stewart, sem lést árið 2010. Hún var sögð hafa látist eftir að hafa fengið flogaveikiskast í garði Stewart-hjónanna. Lögregla lýsir Stewart sem sjálfselskum, útskognum og kuldalegum og segir hann hafa blekkt Bailey þegar þau hittust á spjallsíðu á netinu í kjölfar dauða eiginmanns Bailey árið 2011. Sögðu saksóknarar að Stewart hafi ávallt haft í hyggju að komast yfir auð Bailey. Sama dag og Bailey var myrt, 11. apríl á síðasta ári, reyndi Stewart að hækka þá mánaðarlegu fjárhæð sem flutt var frá einkareikningi Bailey og yfir á sameiginlegan reikning þeirra, úr 600 pundum í 4.000 pund. Síðar reyndi hann að selja íbúð Bailey í Gateshead. Stewart lét lýsa yfir Bailey þann 15. apríl þar sem hann sagði: „Sama hvað hefur gerst, hvar sem þú ert, ég skal koma og sækja þig.“ Sagði hann Bailey hafa skilið eftir miða þar sem hún sagðist þurfa „rými“ og að hún hafi farið í bústað sinn í Broadstairs í Kent. Lík Bailey fannst svo þremur mánuðum síðar í þró undir bílskúr við heimili þeitta í Royston ásamt hræi hundsins Boris. Á morgun mun dómari kveða upp um refsingu yfir Stewart. Helen Bailey auðgaðist mikið á unglingabókum sínum um Electru Brown.
Mest lesið „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Innlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Innlent Fleiri fréttir Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Sjá meira