Skotárásin í Flórída: Lögreglan með einn í haldi sem sagði yfirvöld stjórna hugsunum sínum Birgir Olgeirsson skrifar 7. janúar 2017 08:41 Frá flugvellinum í Fort Lauderdale í gær. Vísir/EPA
Lögreglan í Flórída hefur yfirheyrt mann sem grunaður er um árás á flugvellinum í Fort Lauderdale sem kostaði fimm mann lífið. Sá sem er í haldi lögreglu er hinn 26 ára gamli Esteban Santiago sem barðist í Íraksstríðinu fyrir Bandaríkjaher.Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC segir fjölmiðla vestanhafs hafa greint frá því að maðurinn hafi mögulega átt við geðraskanir að stríða. Hann hafði að sögn látið þau orð falla að bandarísk yfirvöld stjórnuðu hugsunum hans og hefðu látið hann horfa á myndbönd með íslömskum öfgamönnum. Árásarmaðurinn hóf skothríð við farangurshlið en sjónarvottar segja hann hafa gengið þöglan um á meðan hann skaut á fólk sem reyndi að flýja. Hann gaf sig fram við lögreglu þegar hann hafði klárað skotfæri sín. Árásarmaðurinn var klæddur í Star Wars-bol og komið til flugvallarins í Fort Lauderdale frá Alaska. Hann er sagður hafa tekið með óhlaðna byssu og skotfæri í farangri sínum. Þegar hann kom á flugvöllinn í Fort Lauderdale náði hann í tösku sína, fór inn á baðherbergi þar sem hann hlóð byssuna og hóf svo skothríð. „Við munum rannsaka alla þætti málsins til að finna út hvert tilefni þessarar árásar var,“ hefur BBC eftir George Piro hjá bandarísku alríkislögreglunni FBI. Piro sagði að ekki væri búið að útiloka að árásin væri hryðjuverk. Talið er að hinn grunaði, Esteban Santiago, verði leiddur fyrir dómara á mánudag. Hann var hluti af varaherliði Alaska-ríkis og barðist í Íraksstríðinu frá apríl 2010 til febrúar 2011. Hann var leystur frá störfum í ágúst í fyrra vegna ófullnægjandi frammistöðu.
Tengdar fréttir Skotárás í Flórída Þónokkrir eru særðir eftir skotárás á flugvellinum í Fort Lauderdale í Flórída í dag. 6. janúar 2017 18:49 Mest lesið Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Ísraelar herja á miðborg Beirút Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Fleiri fréttir Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Sjá meira
Skotárás í Flórída Þónokkrir eru særðir eftir skotárás á flugvellinum í Fort Lauderdale í Flórída í dag. 6. janúar 2017 18:49