Sport

Klikkaði á síðasta sparkinu sínu og missti af 57 milljóna króna bónus

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Adam Vinatieri.
Adam Vinatieri. Vísir/Samsett
Adam Vinatieri er einn frægasti og besti sparkarinn í sögu ameríska fótboltans en þessi 44 ára gamli maður er enn að spila í NFL-deildinni þrátt fyrir að vera kominn langt inn á fimmtugsaldurinn.

Vinatieri er frægur fyrir að klikka aldrei á úrslitastundu og hefur hann meðal annars tryggt tveimur liðum NFL-meistaratitilinn á sínum ferli með því að skora vallarmark í lokin á Super Bowl leik.

Adam Vinatieri setti líka nýtt NFL-met á þessu tímabili með því að skora 44 vallarmörk í röð án þess að klikka. Hann átti mjög gott tímabil þrátt fyrir að liði hans hafi mistekist að komast í úrslitakeppnina.

Vinatieri klikkaði aftur á móti á vallarmarki í síðasta leik tímabilsins hjá Indianapolis Colts en þetta var leikur sem skipti engu máli fyrir Colts-liðið. Þótt að þetta vallarmark hafi ekki skipt liðið miklu máli þá skipti það hann sjálfan mjög miklu máli.

Indianapolis Colts ætlaði nefnilega að borga Adam Vinatieri 500 þúsund dollara bónus ef hann næði að nýta nítíu prósent sparka sinn á tímabilinu. 500 þúsund dollarar eru 57 milljónir íslenskra króna og því ágætis bónus þarna á ferðinni. ESPN segir frá.

Adam Vinatieri kom inn í lokaleikinn með 89,6 prósent nýtingu og hefði hann nýtt öll spörkin sín í honum þá hefði hann tryggt sér bónusinn.

Vinatieri klikkaði hinsvegar á 48 jarda sparki í öðrum leikhluta á móti Jacksonville Jaguars sem þýddi að hann nýtti „aðeins“ 87,1 prósent sparka sinna á leiktíðinni.

Adam Vinatieri fékk 3,2 milljónir dollara fyrir allt tímabilið eða 370 milljónir og hefði því getað tryggt sér fimmtán prósenta launahækkun hefði hann skorað. Hann þarf svo sem ekkert að kvarta mikið yfir launum sínum og lifir þetta örugglega alveg af.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×