Innlent

Um 32 tonn af tóbaki enduðu í vörinni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ungir karlmenn troða miklu í vörina á hverju ári.
Ungir karlmenn troða miklu í vörina á hverju ári. vísir/gva
Heildsöluverð á íslensku neftóbaki hækkaði um 60 prósent um áramótin. Fyrir áramót seldi ÁTVR verslunum tuttugu neftóbaksdósir saman á 29.260 krónur en 1. janúar fór verðið á þessum tuttugu dósum í 47.053 krónur.

Dósin hækkaði því um 890 krónur og fór upp í 2.352 krónur. Eftir hækkunina fæst ein slík neftóbaksdós á 3.058 krónur í Hagkaup.

Ástæðu hækkunar á neftóbaki má rekja til hækkunar á tóbaksgjaldi á neftóbak um síðustu áramót. Þá var tóbaksgjald á neftóbak hækkað úr 15,10 krónum á hvert gramm í 25,53, eða sem nemur 70 prósentum. 

Hækkunin var ákveðin að tillögu forstjóra ÁTVR í erindi hans til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Í umsögninni er bent á að sala á neftóbaki hafi farið úr 16,9 tonnum árið 2007 í rúm 40 tonn árið 2016.

Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá Landlækni, fagnar hækkuninni. Tóbaksgjald á neftóbak hafi hækkað um helming áramótin 2012 og 2013 og þá hafi slegið verulega á eftirspurn eftir tóbakinu. „Þótt áhrifin hafi síðan dvínað, þá vitum við að verð hefur áhrif og sérstaklega á það við varðandi ungt fólk,“ segir Viðar.

Viðar segir Landlækni hafa reiknað út að 70 til 80 prósent af þeim 40 tonnum sem seld eru af íslensku neftóbaki fari í munn á ungum karlmönnum. 

Í könnun sem gerð var árið 2012 hafi komið fram hversu mikils af neftóbaki var neytt sem neftóbaks og hversu mikils var neytt sem munntóbaks. „Svo endurtókum við þetta 2015 og þá sáum við á yngsta hópnum, 18 til 24 ára, að neysla þar hafði enn aukist,“ segir Viðar. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

40 tonn seld af neftóbaki í ár

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins leggur til að tóbaksgjald hækki um allt að 69 prósent á hvert gramm tóbaks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×