Guardiola trylltist eftir tapið gegn Liverpool Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. janúar 2017 20:45 Pep Guardiola var mjög ósáttur. vísir/getty
Yaya Touré, miðjumaður Manchester City, viðurkenndi á blaðamannafundi fyrir leik liðsins gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum hans í Burnley í dag að Pep Guardiola, knattspyrnustjóri City, trylltist eftir tapið gegn Liverpool á gamlársdag. Flest stærstu dagblöð Englands sögðu frá því á nýársdag að Guardiola sást hella sér yfir Txiki Begiristain, yfirmann knattspyrnumála hjá City, á göngum Anfield eftir 1-0 tapið á síðasta degi ársins 2016. Sigurmarkið skoraði Hollendingurinn Georginio Wijnaldum. Vegna tapsins er Manchester City ekki lengur á meðal fjögura efstu liða deildarinnar en það er í fyrsta síðan í ágúst að City er ekki í topp fjórum. Liðið er í fimmta sæti með 39 stig líkt og Tottenham en slakari markatölu.Sjá einnig:Guardiola „glaður“ en samt ekki eftir sigurinn á Burnley „Auðvitað varð hann reiður. Hann er stjóri sem getur orðið reiður,“ sagði Yaya Touré á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Burnley sem hefst klukkan 15.00 í dag. „Við vissum að Liverpool myndi bíða eftir því að við misstum boltann klaufalega og það gerðu þeir. Þeir nýttu sér mistök okkar til að skora sigurmarkið og Pep var reiður út af því að það gerðist.“ „Við erum ekki fullkomnir. Það koma leikir þar sem við nýtum ekki okkar færi en líka leikir þar sem við nýtum okkur annarra manna mistök. VIð verðum að bæta okkur í svona aðstæðum. Það er alltaf leiðinlegt að tapa en nú þurfum við bara að koma sterkari til baka,“ sagði Yaya Touré.Að neðan má sjá svipmyndir úr leiknum.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu stórvandræðalegt viðtal við Guardiola: Þú ert blaðamaðurinn Pep Guardiola var ekki í stuði fyrir spurningar í sjónvarpsviðtali eftir 2-0 sigur Manchester City á Burnley í gær. 3. janúar 2017 10:00 Mest lesið Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Safnaði kröftum á Íslandi eftir brottrekstur Fótbolti Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Enski boltinn Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Íslenski boltinn Dunne telur að Heimir gæti misst starfið strax Fótbolti Ótrúleg vika í lífi Teits Örlygs: „Skiljanleg viðbrögð“ Körfubolti Svona mark sést bara á nokkurra ára fresti: „Algjörlega einstakt“ Íslenski boltinn UEFA hefur rannsókn vegna kvartana Tel Aviv Fótbolti Konaté mætti með nýstárlega grímu til æfinga Fótbolti Mældu tímann í Kórnum: „Mér finnst þetta alveg galið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Sjá meira
Sjáðu stórvandræðalegt viðtal við Guardiola: Þú ert blaðamaðurinn Pep Guardiola var ekki í stuði fyrir spurningar í sjónvarpsviðtali eftir 2-0 sigur Manchester City á Burnley í gær. 3. janúar 2017 10:00