Enski boltinn

Segir að Coutinho og Matip missi af leiknum gegn Sunderland

Jurgen Klopp ræðir við aðstoðarmann sinn í leik gærdagsins.
Jurgen Klopp ræðir við aðstoðarmann sinn í leik gærdagsins. Vísir/Getty
Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Philippe Coutinho og Joel Matip missi báðir af leik Liverpool gegn Sunderland á morgun vegna meiðsla.

Coutinho sem hefur verið frá undanfarnar vikur stefndi á að ná leiknum gegn Manchester City í gær en hann verður heldur ekki klár fyrir leikinn gegn Sunderland.

Þá eru ökklameiðsli ennþá að stríða Matip sem hefur ekkert leikið í undanförnum fjórum leikjum en Liverpool hefur haldið hreinu í þremur þeirra.

Þrátt fyrir að vera án þessarra lykilmanna og að leikmennirnir fái ekki tvo sólarhringa í hvíld milli leikja segir Klopp að engar afsakanir verði teknar gildar.

„Ég trúi ekki á kraftaverk, þeir eru ekki tilbúnir fyrir leikinn gegn Sunderland. Við þurfum að treysta á að leikmennirnir séu ennþá ferskir og geti spilað á morgun því þreyta er engin afsökun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×