Enski boltinn

Giroud með glæsimark er Arsenal komst í þriðja sætið | Sjáðu mörkin

Olivier Giroud skoraði glæsilegt mark í 2-0 sigri á Crystal Palace í lokaleik dagsins í enska boltanum en með sigrinum kemst Arsenal upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Var þetta annar leikur Crystal Palace undir stjórn Sam Allardyce en lið Stóra Sam hafa oft reynst Arsenal erfið.

Giroud kom Arsenal yfir með stórbrotnu marki á 17. mínútu leiksins er hann skoraði með hælnum af 10-15 metra færi.

 Fór fyrirgjöf Alexis Sanchez fyrir aftan Giroud en hann stýrði boltanum í slánna og inn með hælnum, óverjandi fyrir Wayne Hennessey í marki Crystal Palace.

Alex Iwobi bætti við marki í upphafi seinni hálfleiks með skalla en sigurinn var aldrei í hættu eftir það. Bæði lið fengu ágætis færi en Arsenal hélt góðri stjórn á leiknum.

Lauk leiknum með 2-0 sigri Arsenal á heimavelli en þetta var annar sigur liðsins í röð og eru Skytturnar komnar upp í þriðja sæti ensku deildarinnar þegar deildin er hálfnuð, níu stigum á eftir Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×