Obama styttir dóm Chelsea Manning Samúel Karl Ólason skrifar 17. janúar 2017 22:51 Vísir/AFP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, stytti í dag dóm Chelsea Manning. Hún var dæmd í 35 ára fangelsi árið 2010 fyrir að leka gögnum til Wikileaks. Manning mun losna úr fangelsi þann 17. maí í stað þess að losna út árið 2045. Manning reyndi að fremja sjálfsmorð tvisvar sinnum í fyrra. Nú í nóvember bað hún Obama um að stytta dóm sinn áður en hann færi úr embætti, sem hann gerir á föstudaginn. Þegar hún var handtekin árið 2010 gekk hún undir nafninu Bradley Manning og hefur hún verið vistuð í herfangelsi í Fort Leavenworth. Þar hefur hún hafið kynleiðréttingu og hefur farið fram á að fara í kynleiðréttingaraðgerð.New York Times segir ákvörðun Obama hafa forðað varnarmálaráðuneytinu frá því að halda Manning í fangelsi fyrir karla og útvega skurðaðgerðir og aðrar aðgerðir. Auk Chelsea Manning stytti Obama dóma 209 annarra fanga.Obama náðaði þó ekki Edward Snowden eins og kallað hafði verið eftir. Josh Earnest, talsmaður Obama, sagði að þrátt fyrir að glæpir Manning og Snowden væru svipaðir væri stór munur á þeim. „Chelsea Manning fór í gegnum dómkerfi hersins, fylgdi réttum ferlum, var fundin sek, dæmd í fangelsi og viðurkenndi verknað sinn og að það hefði verið rangt. Snowden flúði til andstæðings okkar og hefur skýlt sér í landi sem hefur markvisst unnið að því draga undan trúverðugleika lýðræðis okkar.“ Þá sagði Earnest að það hefði verið mikill munur á lekum Manning og Snowden.
Mest lesið Segist afhjúpa sannleikann í „tengdamömmumálinu“ Innlent Kominn tími til að rapparar og áhrifavaldar axli ábyrgð Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Björguðu dreng úr gjótu Innlent Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Innlent Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Erlent „Það eru ekki skattahækkanir“ Innlent Ber ekki ábyrgð á tjóni stuðningsfulltrúa sem nemandi beitti ofbeldi Innlent Allir og amma þeirra keppast um að skilgreina „woke“ Innlent Friðrik Ólafsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Skoða kostnaðinn við yfirtöku Grænlands Loka síðasta kolaorkuveri Finnlands Demókratar unnu dýrustu dómarakosningar Bandaríkjanna Sjá meira