Fótbolti

Viðar skoraði bæði í framlengingu og vítakeppni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar hefur skorað þrjú bikarmörk í vetur.
Viðar hefur skorað þrjú bikarmörk í vetur. vísir/getty
Viðar Örn Kjartansson átti stóran þátt í því að tryggja Maccabi Tel Aviv sæti í 8-liða úrslitum ísraelsku bikarkeppninnar.

Maccabi mætti Hapoel Raanana á útivelli í 16-liða úrslitunum í kvöld.

Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að framlengja. Á 102. mínútu kom Viðar Maccabi yfir með sínu þriðja bikarmarki í vetur.

Það stefndi í sigur Maccabi en í uppbótartíma framlengarinnar fékk Hapoel vítaspyrnu sem Shimon Abuhatzira skoraði úr. Því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni.

Þar höfðu Maccabi-menn betur, 2-4. Viðar tók þriðju spyrnu Maccabi og skoraði úr henni. Íslenski landsliðsmaðurinn stóð því svo sannarlega fyrir sínu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×