Diego Costa klúðraði víti og Liverpool endaði taphrinuna á Anfield | Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2017 21:45
Simon Mignolet bjargaði stigi fyrir Liverpool í kvöld þegar hann varði vítaspyrnu frá Diego Costa þrettán mínútum fyrir leikslok. Liverpool var búið að tapa þremur leikjum í röð á Anfield á stuttum tíma og tókst að enda taphrinuna þótt að heimamenn hafi viljað meira út úr leiknum í kvöld. Chelsea er komið með níu stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þrátt fyrir þetta 1-1 jafntefli á móti Liverpool á Anfield í kvöld. Tottenham og Arsenal náði ekki að nýta sér þetta, Tottenham gerði jafntefli og Arsenal tapaði á heimavelli. Chelsea jók því forskot sitt um eitt stig og gátu Chelsea-menn því fagnað stiginu í leikslok. Liðsmenn og knattspyrnustjóri Chelsea, Antonio Conte, voru mun ánægðari með úrslitin en liðsmenn Liverpool sem þurftu helst að vinna leikinn til að koma sér aftur inn í titilbaráttuna. Liverpool fékk færi til að tryggja sér sigur og þá sérstaklega Roberto Firmino en besta færi til að bæta við mörkum fékk þó Diego Costa. Diego Costa fiskaði vítið sjálfur en Simon Mignolet varði frá honum. David Luiz kom Chelsea í 1-0 með marki beint úr aukaspyrnu á 25. mínútu en Georginio Wijnaldum jafnaði með skalla á 57.mínútu. Bæði lið fengu færi til að tryggja sér sigurinn en sigurmark var ekki í spilunum á Anfield í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið „Við höfum líka mikið af vopnum í okkar búri“ Íslenski boltinn Njarðvík leikur í IceMar-höllinni Körfubolti „Borgarnes-Bjarni grjótharður í þessum leik“ Körfubolti „Verðum að vera harðari“ Körfubolti Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Handbolti Ísak: Við erum ekki komin á þann stað sem við viljum vera Sport Selfoss komið á blað Handbolti Guðrún sænskur meistari eftir sigur í Íslendingaslag Fótbolti Lukaku allt í öllu í sigri Napoli á nýliðunum Fótbolti Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Fleiri fréttir Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Sjá meira