Innlent

Nemendur fluttir á sjúkrahús með brunasár

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hólabrekkuskóli.
Hólabrekkuskóli. Mynd/Google maps
Þrír nemendur unglingadeildar Hólabrekkuskóla voru fluttir á sjúkrahús í gær með 1. og 2. stigs brunasár. Nemendurnir voru í eðlisfræðistofu skólans að gera tilraun þar sem meðhöndlað var eldfimt efni. RUV.is greindi fyrst frá.

Nemendurnir voru að gera klassíska tilraun þar sem eldfjall er búið til og látið gjósa. Tilraunin hefur verið framkvæmd í grunnskólum landsins og víðar í áraraðir en kennarinn í Hólabrekkuskóla er afar reyndur í faginu samkvæmt heimildum Vísis.

Voru nemendurnir, sem eru í 9. bekk, í fjórum hópum en slysið varð í einum þeirra. Tilrauninni var í raun lokið þegar óæskilegt efni blandaðist við þau sem fyrir voru og úr varð hvellur og eldur. Töluvert uppnám greip um sig í skólanum en  meðal annars kviknað í fötum barnanna, sem eru í 9. bekk. Voru þau flutt á sjúkrahús.

Í bréfi sem Hólmfríður G. Guðjónsdóttir, skólastjóri skólans, sendi á forelda og forráðamenn barna í skólanum í gær sagði að líðan nemenda væri eftir atvikum góð. Rætt hafi verið við nemendur skólans vegna slyssins og þeir sem vilji verði boðin áfallahjálp hjá námsráðgjafa eða skólahjúkrunarfræðingi.

Skólaskemmtun sem fyrirhuguð var hjá bekkjum á miðstigi og unglingadeild skólans var aflýst vegna slyssins.

Í morgun kom fram á fundi kennara skólans að tvö barnanna hefðu fengið að fara heim en eitt væri enn á spítala. Þau munu þó öll ná sér að fullu. 

Hvorki náðist í skólastjóra né aðstoðarskólastjóra Hólabrekkuskóla við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×