Innlent

Fann fyrir miklum létti þegar hælinu var lokað

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Fyrrverandi starfsmaður á Kópavogshæli segir það hafa verið mikinn létti þegar stofnunin var lögð niður. Hann segir viðhorf starfsmanna þar hafa verið framan af að sinna aðeins grunnþörfum íbúanna, og lýsir því þegar tólf ára drengur var læstur inni á nóttunni, án þess að hafa aðgang að vatni eða salerni.

Sláandi skýrsla Vistheimilisnefndar um aðbúnað og daglegt líf á Kópavogshælinu, sem starfrækt var frá árinu 1952 til 1993, var kynnt í gær. Þar er því lýst hvernig börn máttu sæta líkamlegu og andlegu ofbeldi, auk harðræðis á meðan á vistun stóð.

12 ára drengur læstur inni í salernislausu herbergi á nóttunni

Þóroddur Þórarinsson starfaði í tvígang á hælinu. Hann segist einu sinni hafa orðið vitni að ofbeldi gegn barni, þegar tólf ára drengur var læstur inni á nóttunni. 

„Hann var erfiður og sumar næturvaktir, sem voru fullorðnar konur með þrjár deildir, þær treystu sér ekki til að aðstoða hann við að skipta um bleyju. Þær kíktu bara á gluggann. Það voru svona aðstæður sem við myndum alls ekki bjóða upp á í dag. Hann gat ekki farið á klósett, hann gat ekki fengið sér vatn og varð bara að bíða eftir morgunvaktinni í mörgum tilfellum,“ segir hann.

Viðhorf starfsfólks að sinna bara grunnþörfum

Þóroddur segir viðhorf eldra starfsfólks á hælinu hafa verið að sinna aðeins grunnþörfum íbúa.

„Það komu ungar stúlkur sem vildu gera vel og voru jafnvel að aðstoða konur við að snyrta sig, naglalakka og svoleiðis. Eldra starfsfólk eiginlega hnýtti í þær fyrir það. Hvað þær væru að dúlla sér lengi við að sinna þessum. Það virtist vera viðhorf sem var bara að sinna nauðþörfum,“ segir hann.

Í seinna skiptið sem Þóroddur starfaði á hælinu hafði hann lokið námi í þroskaþjálfun og vildi leggja sitt af mörkum til að breyta þar starfsháttum. Hann segir það hafa verið mikinn létti þegar Kópavogshæli var lagt niður. 

„Í smáskrefum tókst okkur að afnema matarrefsingar strax og stíga skref í að gera Kópavogshæli heimilislegra. Og börðumst jafnframt fyrir því að það yrði lagt niður, sem var svo á endanum gert.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×