Fer í mál við Facebook út af sjálfu sem hann tók með Angelu Merkel Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. febrúar 2017 23:30 Modamani tók sjálfu með Merkel þegar hún heimsótti flóttamannaskýli sem hann bjó í í Berlín. vísir/getty
Sýrlenski flóttamaðurinn Anas Modamani hefur höfðað mál gegn Facebook eftir að sjálfa sem hann tók af sér með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, var notuð til að dreifa fölskum fréttum á samfélagsmiðlinum. Í umfjöllun á vef BBC kemur fram að Modamani hafi sett myndina á Facebook í ágúst 2015 en hún var síðar notuð til að tengja hann ranglega við hryðjuverkaárásir. Facebook eyddi sumum póstunum en lögfræðingar Modamani halda því fram að myndin hafi samt birst víða og að Facebook hefði getað gert meira til þess að koma í veg fyrir að fólk myndi deila myndinni á þennan hátt. Myndin hefur til að mynda verið notuð í póstum um hryðjuverkaárásina í Brussel og árásina sem gerð var á jólamarkað í Berlín. Lögfræðingur Facebook hefur hins vegar svarað því til að svo koma megi í veg fyrir hvers kyns misnotkun efnis á samfélagsmiðlinum þyrfti að finna upp einhvers konar töfravél sem er einfaldlega ekki til. Þá sagði hann jafnframt að Facebook hefði eytt öllum póstum sem Modamani hefði tilkynnt og að það væru í raun einstaklingarnir sem hefðu deilt myndinni sem væru ábyrgir en ekki samfélagsmiðillinn. Modamani flúði frá Sýrlandi árið 2015 og bjó í flóttamannaskýli í Berlín þegar Merkel kom þangað í heimsókn. Hann setti myndina á Facebook-síðu sína en hún varð fljótt nokkurs konar táknmynd fyrir innflytjendastefnu Merkel. Búist er við því að dómur í máli Modamani gegn Facebook, sem höfðað er fyrir dómstólum í Þýskalandi, verði kveðinn upp í mars.
Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Fleiri fréttir Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Sjá meira