Fótbolti

Rúnar og Gary Martin bíða enn eftir fyrsta sigurleiknum saman

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rúnar Kristinsson ekki alveg sáttur í kvöld.
Rúnar Kristinsson ekki alveg sáttur í kvöld. Vísir/AFP
Lokeren gerði markalaust jafntefli á móti Anderlecht í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Þetta er gott stig fyrir Lokeren enda Anderlecht tíu sætum ofar í töflunni en leikmenn Lokeren er þó farið að lengja eftir fyrst sigrinum á árinu 2017.

Lokeren hefur aðeins náð í tvö stig af tólf mögulegum í fyrstu fjórum leikjum ársins.

Rúnar setti Gary Martin inn í byrjunarliðið í fyrsta sinn en það dugði ekki til að fá mark í kvöld.

Gary Martin var búinn að koma inná sem varamaður í tveimur leikjum á undan en hann á eftir að opna markareikninginn sinn í Belgíu.

Rúnar tók Gary af velli á 68. mínútu leiksins og setti serbneska miðjumanninn Marko Mirić inn í staðinn.

Lokeren hefur spilað tólf deildarleiki undir stjórn Rúnars, unnið þrjá, gert sex jafntefli og tapað þremur. Markatalan er 11-10 Lokeren í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×