Menning

Saga landnámskvenna á saumuðum myndum 

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Vilborg Davíðsdóttir, Bryndís Símonardóttir og Kristín Ragna Gunnarsdóttir með mynd af Þórunni hyrnu, teiknaða af Kristínu Rögnu.
Vilborg Davíðsdóttir, Bryndís Símonardóttir og Kristín Ragna Gunnarsdóttir með mynd af Þórunni hyrnu, teiknaða af Kristínu Rögnu.
Sýning á yfir 300 refilsaumuðum myndum verður opnuð í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit í dag klukkan 14, að frumkvæði Bryndísar Símonardóttur, fjölskylduráðgjafa og handverkskonu í Eyjafirði.

Myndirnar eru saumaðar af afkomendum skoskra innflytjenda í 33 löndum og sýningin, sem nefnist Scottish Diaspora Tapestry, hefur verið á ferð milli þeirra landa síðustu tvö ár. Ísland er síðasti viðkomustaðurinn á leið til Skotlands aftur og hér munu fimm myndir bætast við eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur, teiknara og rithöfund. 

Myndirnar segja sögu systranna Þórunnar hyrnu og Auðar djúpúðgu Ketilsdætra sem komu hingað til lands með fjölskyldur sínar frá Skotlandi á níundu öld. 



„Ég teiknaði myndirnar undir handleiðslu Vilborgar Davíðsdóttur sem er sérfræðingur í þeim Auði og Þórunni,“ segir Kristín Ragna.

 „Nú er saumaskapurinn að mestu eftir en ég held þó að fimm konur séu þegar byrjaðar. Það verður hægt að sjá þær að verki á opnuninni í dag og alltaf er gaman að fylgjast með verki í vinnslu.“



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. febrúar 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.