Innlent

Átján sektaðir fyrir að leggja ólöglega

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Eigendur átján bíla voru sektaðir fyrir að leggja ólöglega.
Eigendur átján bíla voru sektaðir fyrir að leggja ólöglega. vísir/anton brink
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði eigendur alls átján bíla í nótt fyrir að leggja bílum sínum ólöglega og tók einn úr umferð fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.

Þetta kemur fram í skeyti frá lögreglu, en þar segir að nóttin hafi að öðru leyti verið róleg.

Nokkur hálka var á götum í nótt og fram undir morgun en engin slys eða óhöpp hlutust af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×