44 ára markvörður kom Egyptum í úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2017 22:26
Egyptaland komst í kvöld í úrslitaleikinn í Afríkukeppninni eftir sigur á Búrkína Fasó í vítakeppni. Essam El Hadary, 44 ára markvörður Egypta, var hetja liðsins þegar hann varði vítaspyrnu frá Bertrand Traore og tryggði sínu liði 4-3 sigur í vítakeppninni. El Hadary, sem var að spila sinn 150. Landsleik varði tvær síðustu vítaspyrnurnar frá lánlausum leikmönnum Búrkína Fasó. Mohamed Sala kom Egyptum í 1-0 á 66. mínútu en Aristide Bance jafnaði metinn fyrir Búrkína Fasó og varð um leið fyrstur til að skora hjá Egyptum í keppninni. Búrkína Fasó var betra liðið í leiknum en náði ekki að nýta sér það. Hvorugu liðinu tókst að skora fleiri mörk í venjulegum leiktíma og það var enn jafnt eftir framlenginguna. Vítakeppnin byrjaði vel fyrir Búrkína Fasó þegar hinn tvítugi markvörður Herve Koffi varði fyrstu spyrnu Egypta frá Abdallah El Said. Herve Koffi breyttist úr hetju í skúrk þegar hann klúðraði fjórðu vítaspyrnu síns liðs. Reynsluboltinn Essam El Hadary sá við honum og varði síðan líka síðustu spyrnuna frá Bertrand Traore. Egyptar skoruðu úr fjórum síðustu vítaspyrnum sínum en þeir Ramadan Sobh, Ahmed Hegazy, Mohamed Salah og Amr Warda nýttu allir sínar vítaspyrnur. Þetta verður fyrsti úrslitaleikur Egypta í keppninni síðan að þeir unnu hana síðast árið 2010. Í úrslitaleiknum mæta þeir annaðhvort Kamerún eða Gana sem mætast á morgun.
Fótbolti Mest lesið Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Körfubolti „Þegar þeir misstíga sig þá misstígum við okkur líka“ Fótbolti „Erum ennþá með þetta í okkar höndum“ Fótbolti „Menn eru að henda sér fyrir bolta og hlaupa úr sér lungun“ Fótbolti Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking Íslenski boltinn Uppgjörið: HK - Fylkir 2-2 | Brynjar Snær felldi Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man United ekki byrjað verr síðan 1989 „Menn eru að henda sér fyrir bolta og hlaupa úr sér lungun“ „Erum ennþá með þetta í okkar höndum“ „Þegar þeir misstíga sig þá misstígum við okkur líka“ Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt „Þú ert skilgreindur af nútíðinni“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking Uppgjörið: HK - Fylkir 2-2 | Brynjar Snær felldi Fylki Orri Steinn spilaði ekki í jafntefli gegn Atl. Madríd Uppgjörið: Breiðablik - Valur 2-2 | Óbreytt staða á toppnum eftir jafntefli á Kópavogsvelli Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton „Ég verð bara að setja fleiri í vegginn næst og standa í nærhorninu“ Lewandowski sá um Alavés Uppgjörið: KA - KR 0-4 | Gott gengi KR heldur áfram Uppgjörið: ÍA - FH 4-1 | Skagamenn blanda sér í baráttuna um þriðja sætið Fyrirliði Íslandsmeistaranna hætt Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Varði víti frá þremur mismunandi leikmönnum í sama leiknum Sævar Atli braut ísinn og tryggði Lyngby stig Juventus fékk loksins á sig mark Vaknar Árbærinn aftur? Sækja innblástur til kvennaliðsins: „Frábært að fylgjast með þessu“ Sjáðu Andra Rúnar skjóta Fram í kaf Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Varafyrirliði Real Madrid sleit krossband Sjá meira