Enski boltinn

Engin leið í gegn fyrir City-menn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Úr leiknum á John Smith's Stadium.
Úr leiknum á John Smith's Stadium. vísir/getty
Huddersfield Town og Manchester City þurfa að mætast aftur í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar eftir 0-0 jafntefli á John Smith's Stadium í dag.

Huddersfield, sem situr í 3. sæti B-deildarinnar, var síst lakari aðilinn í leiknum í dag.

Daninn Philip Billing kom boltanum í netið í fyrri hálfleik en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

City var meira með boltann í leiknum en komst lítt áleiðis gegn vel skipulögðu liði Huddersfield.

Liðin mætast öðru sinni á Etihad vellinum. Ekki er komin dagsetning á þann leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×