Lífið

James Corden fer skrefinu lengra í Carpool Karaoke

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rosalegt plan framundan.
Rosalegt plan framundan.
Carpool Karaoke er einhver allra vinsælasti dagskráliður heims og tröllreið hann internetinu á árinu 2016.

Bretinn James Corden heldur utan um dagskráliðinn í þætti sínum The Late Late Show with James Corden.

Núna er komin fram glæný stikla frá Apple Corden og má þar sjá hvað er framundan í Carpool Karaoke.

Tæknirisinn Apple er greinilega aðal styrktaraðilinn á bakvið liðinn en stiklan kemur frá fyrirtækinu.

Það sem gerir næstu þætti mjög áhugaverða er að núna er búið að para saman stjörnur og rúnta þær saman. Stiklan hefur vakið mikla athygli og eiga aðdáendur greinilega von á góðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.