Ruud Gullit ánægður með Gylfa og félaga í Swansea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2017 08:00 Gylfi Þór Sigurðsson og Ruud Gullit. Vísir/Samsett/Getty
Hollenska knattspyrnugoðsögnin Ruud Gullit og gamla enska varnartröllið Martin Keown fóru yfir leik Swansea City í Match of the Day 3 þættinum á BBC en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hafa fengið tólf stig í síðustu sex leikjum sínum og unnu Englandsmeistara Leicester City sannfærandi um helgina. „Þeir eru betur skipulagðir og allir í liðinu vita núna hvert er þeirra hlutverk. Svo auðvitað kemur fyrsti sigurinn með meira sjálfstraust inn í hópinn. Betri skipulagning hefur samt breytt mestu fyrir þá,“ sagði Ruud Gullit. „Það hefur verið ótrúlegum viðsnúningur hjá þeim. Þeir eru nú með sinn þriðja knattspyrnustjóra á tímabilinu og er langbestur af þeim öllum. Hann er búinn að vera þjálfari í tíu ár og hann hefur sannað það að hann er efni í flottan stjóra með fjórum sigrum í sex leikjum,“ sagði Martin Keown og knattspyrnustjórinn Paul Clement fær mikið hrós frá honum. „Þeim leið mjög vel á móti Leicester og það reyndi ekki mikið á liðið. Ég var hrifinn af kaupum liðsins í janúar. Ég er hrifinn af (Martin) Olsson á fleygiferð niður vinstri vænginn, að sjá (Gylfa) Sigurðsson koma inn á miðjuna og það má sjá á þessum boltum fram frá (Tom) Carroll að hann hefur unnið með Pochettino(knattspyrnustjóra Tottenham). Þeir hafa styrkt liði og litu mjög vel út,“ sagði Martin Keown. Ruud Gullit og Martin Keown ræddu síðan líka möguleika Swansea City á að bjarga sér frá falli og fara yfir það af hverju Paul Clement er svona góður stjóri fyrir liðið. Það er hægt að sjá alla umræðuna með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Njarðvík leikur í IceMar-höllinni Körfubolti „Við höfum líka mikið af vopnum í okkar búri“ Íslenski boltinn „Borgarnes-Bjarni grjótharður í þessum leik“ Körfubolti Ísak: Við erum ekki komin á þann stað sem við viljum vera Sport Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Handbolti Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana Körfubolti „Verðum að vera harðari“ Körfubolti Selfoss komið á blað Handbolti Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Guðrún sænskur meistari eftir sigur í Íslendingaslag Fótbolti Fleiri fréttir Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Sjá meira