Fá ekki 300 milljónir úr 15 milljarða króna ofanflóðasjóði Benedikt Bóas skrifar 13. febrúar 2017 07:00 Ákveðið var á sínum tíma að varnargarðar ofan byggðar í Neskaupstað skyldu reistir í samfellu. Mynd/Kristín hávarðsdóttir „
Við þurfum 300-400 milljónir á ári til að fara í þessar tvær framkvæmdir sem eftir eru. Það er ekki mikið miðað við stöðu sjóðsins,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, en á bæjarráðsfundi sveitarfélagsins var lögð fram bókun um að ekki sé nægt fjármagn á fjárlögum til þess að halda áfram byggingu ofanflóðamannvirkja í Neskaupstað.Páll Björgvin GuðmundssonÍ bókuninni segir að bæjarráð telji það mjög mikilvægt að þessum framkvæmdum verði haldið áfram með tilliti til öryggis íbúa. Mörg rök séu fyrir því, meðal annars að nægt fé er í sjóðnum eða um 15 milljarðar króna. Hafsteinn Pálsson, starfsmaður sjóðsins og umhverfisráðuneytisins, staðfesti stærðargráðuna. Sjóðurinn er geymdur á reikningi og í hann fer meira en tekið er út. Hann er fjármagnaður með því að árlegt gjald er lagt á allar brunatryggðar húseignir og er upphæðin 0,3 prómill af vátryggingarverðmæti. Hafsteinn bendir á að fjárheimildir sjóðsins séu ákveðnar af Alþingi. Ekki megi nýta fjármuni sjóðsins nema sem nemur þeirri upphæð sem Alþingi ákveður. Á bæjarráðsfundinum voru lögð fram afrit af bréfum Páls til þingmanna Norðausturkjördæmis, fjárlaganefndar Alþingis, fjármálaráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra, en hann hefur einnig fundað með ráðherrum vegna málsins. „Svörin sem við höfum verið að fá eru að þetta sé þensluhvetjandi og hluti af útgjaldaramma ríkisins. Það sem við höfum verið að benda á er tvennt. Annars vegar að þetta sé bundið í lög og snúist um öryggi fólks og hins vegar að við höfum verið í framkvæmdum. Það er mikilvægt að það sé samfella í svona verkum. Að það sé ekki verið að byrja upp á nýtt. Það eru verktakar hér að vinna í þessu og þeir gætu séð hag sinn í að bjóða í verkið sem væri hagur fyrir sveitarfélagið og sjóðinn. Þetta eru ekki peningar sem eru að fara í heilbrigðismál eða vegakerfið eða neitt slíkt. Þetta snýst um að nýta peningana sem eru ætlaðir beint í svona verkefni, tekna úr sérstökum sjóði,“ segir Páll. Hann bendir á að verkin tvö séu tilbúin undir hönnun og búið sé að framkvæma umhverfismat. „Við fylgjum þessu máli eftir og vonandi eigum við góð samskipti áfram við stjórnvöld því það er mikilvægt að klára málið.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.Ljóst er að í sjóðnum safnast upp fjármunir meðan lögbundin verkefni er varða öryggi og eignir fólks bíða.Mynd/Kristín hávarðsdóttir
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Erlent Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Innlent Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Innlent Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Erlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Erlent Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Erlent Fleiri fréttir Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Búið að byrgja brunninn Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni Nýir aðilar ráðast í uppbyggingu Vesturbugtar Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Sjá meira