Erlent

Maður skotinn til bana á Möllevångstorginu í Malmö

atli ísleifsson skrifar
Lögregla að störfum í Malmö. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Lögregla að störfum í Malmö. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/afp
23 ára maður var skotinn til bana fyrir utan taílenskan veitingastað á Möllevångstorginu í Malmö í kvöld. Sydsvenskan segir frá því að maðurinn hafi verið skotinn í höfuðið. Enginn hefur verið handtekinn vegna árásarinnar.

Tilkynning um árásina á að hafa borist klukkan 18:40 að staðartíma, en sjónarvottar sáu tvo dökkklædda menn yfirgefa vettvang árásarinnar. Þremur skotum á að hafa verið hleypt af.

Fórnarlamb árásarinnar var flutt á sjúkrahús með lífshættulega ávarka og var úrskurðaður látinn nokkru síðar.

Veitingastaðurinn á að hafa verið fullsetinn þegar árásin áttu sér stað og voru margir sem urðu vitni að árásinni.

Möllevångstorget er að finna rétt suður af miðborginni, en skotárásir hafa verið mjög tíðar í borginni á síðustu mánuðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×