Innlent

Drengur hlaut annars stigs brunasár þegar eldur kom upp í íbúð í Árbænum

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Fimmtán ára gamall drengur hlaut annars stigs brunasár þegar eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi í Árbæ á tólfta tímanum í gærkvöldi. Eigandi íbúðarinnar segir það vera kraftaverki líkast að hann og tveir aðrir hafi komist úr íbúðinni.

Eldurinn kom upp í íbúð á fyrstu hæð við Hraunbæ 182. Rúður sprungu í íbúðinni fyrir ofan og við hlið umræddrar íbúðar, auk þess að íbúðin á þriðju hæð var í mikilli hættu.

Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn og voru þegar mest var um tuttugu manns við vinnu á vettvangi. Eins og sjá má á myndum var mikill eldur í íbúðinni en talið er að hann hafi komið upp í etanol-ofni sem var í stofunni.

Eigandi íbúðarinnar var staddur í svefnherbergi þegar eldurinn kom upp en fimmtán ára sonur hans og frændi voru í stofunni þar sem arininn var staðsettur.

Eigandinn vildi ekki koma fram í viðtali í dag en sagði í samtali við fréttastofu að þegar eldurinn hafi komið upp hafi sonur hans brennst. Hann segir að hann hafi tekið son sinn, farið með hann inn á baðherbergi og í sturtu til þess að slökkva eld sem logi á höndum hans og fötum.

Að hans sögn var íbúðin orðin alelda á örfáum sekúndum og þurfum þeir að fara í gegnum eldinn til þess að komast út úr íbúðinni. Íbúðin sem kviknaði í er afar illa farin, ef ekki ónýt, sem og allt innbú. Þá voru aðrar íbúðir hússins í mikilli hættu en mikill hiti myndaðist úr frá eldinum. Eldurinn var það mikill að rúður tóku að springa á hæðinni fyrir ofan og til hliðar.

Tveir fóru á slysadeild Landspítalans eftir brunann og sagði eigandi íbúðarinnar  í dag að það væri kraftaverk að ekki hafi farið verr en sonur hans fékk annars stig brunasár á höndum en kemur til með að ná sér að fullu.

Var mjög brugðið

Sæþór Helgi Jensson, íbúi á þriðju hæðinni, var ekki heima þegar eldurinn kom upp og var brugðið þegar hann koma heim. Mikið hafi verið um sjúkrabíla og slökkviliðsbíla á svæðinu.

„Svo sá ég að blokkin var orðin svört af sóti. Ég hélt að íbúðin [mín] væri verr farin en hún var. Ég fékk svo að fara með lögreglunni inn í íbúðina. Það var rosalega mikil brunalykt þar, svalirnar eru illa farnar og ytra glerið er sprungið hjá mér, en ekki það innra.“

Þannig að þetta hefur farið betur en á horfðist?

„Hjá mér, já. Það er verra þarna á annarri og fyrstu hæðinni.“

Nokkrir brunar hafa orðið vegna etanól-ofna á undanförnum misserum, allir alvarlegir en árið 2009 varaði Brunamálastofnun við notkun þessara ofna. Slökkvistarf í gærkvöldi gekk greiðlega og var lokið rétt fyrir klukkan eitt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar brunann.


Tengdar fréttir

Eldur í íbúð við Hraunbæ

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var sent upp í Árbæ eftir að eldur kom upp í íbúð við Hraunbæ 182 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×