Innlent

Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 11:59 í dag.
Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 11:59 í dag. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Tveir voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild Landspítalans eftir harðan árekstur á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegar. Ekki er vitað hvort um alvarleg meiðsl er að ræða.

Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 11:59 í dag. Ekki fást upplýsingar um tildrög slyssins að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×