Innlent

Forseta Íslands bjargað úr Reykjavíkurhöfn á 112-daginn

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
112 dagurinn er haldinn um allt land í dag og bjóða 112 og viðbragðsaðilar almenningi að skoða græjur sínar og hitta viðbragðsaðila á Hörputorgi og við Reykjavíkurhöfn í dag.
112 dagurinn er haldinn um allt land í dag og bjóða 112 og viðbragðsaðilar almenningi að skoða græjur sínar og hitta viðbragðsaðila á Hörputorgi og við Reykjavíkurhöfn í dag. Neyðarlínan
112 dagurinn er haldinn um allt land í dag og bjóða 112 og viðbragðsaðilar almenningi að skoða græjur sínar og hitta viðbragðsaðila á Hörputorgi og við Reykjavíkurhöfn í dag.

Í tilkynningu frá Neyðarlínunni segir að mikið hafi mætt á starfsfólki og sjálfboðaliðum hinna ýmsu viðbragðsaðila að undanförnu.

„Nú viljum við nota 112-daginn til að gera okkur glaðan dag, bjóðum almenningi að hitta okkur við Reykjavíkurhöfn, skoða tækin okkar, spjalla og kynnast þessari mikilvægu starfsemi,“ segir í tilkynningunni.

Þeir sem standa að 112 deginum árið 2017 eru: Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn á Íslandi, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Mannvirkjastofnun, Landspítali, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Ríkislögreglustjórinn, Embætti landlæknis, Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, Barnaverndarstofa, Landhelgisgæsla Íslands, Vegagerðin og samstarfsaðilar um allt land.

Dagskrá 112-dagsins:

Tækjasýning við Hörpu og Reykjavíkurhöfn kl. 13-16

Tækjasýning verður á Hörputorgi og við Reykjavíkurhöfn kl. 13-16. Viðbragðsaðilar sýna margvíslegan búnað á Hörputorgi og almenningi er boðið að skoða varðskipið Þór og Sæbjörg, slysavarnaskóla sjómanna, við Faxagarð.

Björgum forsetanum kl. 14.30!

Slysavarnafélagið Landsbjörg og Landhelgisgæsla Íslands bjarga forseta Íslands úr Reykjavíkurhöfn kl. 14.30. Fulltrúar 112 og viðbragðsaðila taka á móti forseta við Hörpu kl. 13.30. Hann kynnir sér tækjasýninguna en fer síðan með björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar út á Reykjavíkurhöfn þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar kemur honum til bjargar kl. 14.30.

Dagskrá í Flóa í Hörpu kl. 15

• Ávarp: Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra 

• Verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2016 afhent

• Eva Björk Eyþórsdóttir og Ragna Björg Ársælsdóttir, starfsmenn bráðamóttöku LSH, syngja við undirleik Viðbragðssveitarinnar

• Skyndihjálparmaður Rauða krossins útnefndur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×