Dönsk stúlka ákærð fyrir hryðjuverk sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 10. febrúar 2017 18:29 Mynd úr safni. vísir/afp
Ríkissaksóknari í Danmörku hefur gefið út ákæru á hendur sextán ára stúlku sem grunuð er um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk í landinu. Hún er fyrsta konan í sögu Danmerkur sem fær á sig ákæru af þessu tagi. Stúlkan var handtekin í janúar í fyrra með sprengiefni sem hún hugðist nota til þess að sprengja upp tvo skóla; eigin skóla í bænum Kundby og einkaskóla fyrir gyðinga í Kaupmannahöfn. Danska lögreglan hefur varist allra fregna þar til í dag þegar ákæra var gefin út. Í yfirlýsingu frá lögreglunni segir að stúlkan hafi verið langt komin í undirbúningi sínum að sprengjuárásunum tveimur og að ætlunarverk hennar hafi verið augljóst. Því hafi hún verið ákærð fyrir hryðjuverk. Tuttugu og fimm ára karlmaður var einnig handtekinn í tengslum við málið. Hann er sagður hafa barist með vígamönnum í Sýrlandi og góðvinur stúlkunnar. Honum hefur nú verið sleppt úr haldi og í yfirlýsingunni segir að rannsókn á máli hans hafi verið ítarleg, en að ekki hafi verið grundvöllur til þess að gefa út ákæru á hendur manninum. Stúlkan er sögð hafa nýlega skipt yfir í íslam, og nágranni hennar sagði í samtali við danska fjölmiðla að stúlkan hafi reynt að fá aðra Dani til þess að gera hið sama. Réttarhöld yfir stúlkunni hefjast 7. apríl næstkomandi og á hún yfir höfði sér að minnsta kosti fjögurra ára fangelsi, verði hún fundin sek.
Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Fleiri fréttir Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Sjá meira