Innlent

Sótti veikan skipverja á Dettifossi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar.
TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar. Vísir/Vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í hádeginu í dag eftir að tilkynning barst um veikan skipverja á flutningaskipinu Dettifossi. Hún var komin að skipinu um einum og hálfum klukkutíma síðar, en skipið var þá skammt út af Hornafirði.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að aðstæður hafi verið góðar og að vel hafi gengið að koma sjúklingnum um borð. Þyrlan hafi tekið eldsneyti í Vestmannaeyjum í bakaleiðinni og lent við Landspítalann í Fossvogi klukkan fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×