Innlent

Varað við vatnavöxtum á Austurlandi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/valli
Vegagerðin varar við vatnavöxtum á Austurlandi. Vatn flæðir yfir veg við Naustá í Fáskrúðsfirði og eru vegfarendur beðnir um að fara varlega.

Þá flæðir einnig yfir veg í Breiðdal, Berufirði og Skriðdal.

„Hálka og hálkublettir eru á Suðurlandi.

Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir en snjóþekja á Vatnaleið.

Það er hálka á fjallvegum á Vestfjörðum, snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði en að mestu greiðfært á láglendi. 

Á Norðurlandi er hálka eða hálkublettir á stöku stað en hálka er á Dettifossvegi.

Vegir á Austurlandi eru að mestu auðir. Vattarnesskriður eru ófærar vegna aurskriðu. Greiðfært er með suðausturströndinni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×