Erlendir sjálfboðaliðar dreifa hrossaskít í Hafnarfirði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 23. febrúar 2017 07:00 Víða er eyðilegt í upplöndum Hafnarfjarðar. vísir/pjetur
Félagið Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs hyggst í sumar dreifa um 1.200 tonnum af hrossaskít á örfoka land í Hafnarfirði. Fá á erlenda sjálfboðaliða og hafnfirskt skólafólk til verksins. Áætlun Gróðurs fyrir fólk (GFF) var lögð fram í umhverfis- og framkvæmdaráði Hafnarfjarðar í gær undir liðnum uppgræðsla í Krýsuvík. Óskar félagið eftir 2,5 milljóna króna styrk. Síðustu fjögur ár hefur framlag bæjarins til félagsins numið alls 5,8 milljónum króna. „Þegar eru komin á Vistvang rúmlega 800 tonn af hrossataði úr Hafnarfirði. Þetta magn bíður vélar- og handafls til að gagnast við uppgræðslu á árinu 2017. Allt að 400 tonn munu að líkindum bætast við á yfirstandandi losunartímabili,“ segir í bréfi GFF. „Meginmagni þess taðs sem komið er og komið verður á Vistvang verður dreift af mannskap, erlendum sjálfboðaliðum, sem GFF mun koma með á svæðið en þó einna helst af vélarafli sem GFF mun einnig kveðja til,“ segir áfram í bréfinu. Enn fremur kemur fram að til standi að fara með heilan árgang úr Flensborg í apríl til að planta trjám og koma til gróðri á örfoka landi. Þá standi yfir viðræður við grunnskólana Setbergsskóla og Víðistaðaskóla um verkefnið Land-Nám á Vistvangi í maí og júní. „Það snýst um trjáplöntun, vöktun nemenda á árangri hennar og úrvinnslu í skólastofunni á gögnum er nemendur sjálfir hafa aflað í leiðöngrum sínum.“ Um haustið kanni börnin síðan árangurinn. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Innlent Fleiri fréttir Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig En, stefnirðu ekkert lengra en að verða kennari? Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Glerbrot í lauginni „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Sjá meira