Endurupptökunefndin kynnir niðurstöðu sína á föstudag Birgir Olgeirsson skrifar 21. febrúar 2017 11:16
Endurupptökunefnd í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu mun birta niðurstöðu sína á vef endurupptökunefndar klukkan 14 á föstudag. Þar verða birtir úrskurðir er varðar þá sex sem sakfelldir voru í málinu í Hæstarétti í febrúar árið 1980.Vísir greindi frá því fyrr í mánuðinum að endurupptökunefndin myndi ljúka störfum undir lok þessa mánaðar en í dag er greint frá því á vef mbl.is að niðurstaðan verði birt á vef endurupptökunefndar á föstudag klukkan 14.Vinnan staðið yfir í á þriðja ár Björn L. Bergsson, formaður endurupptökunefndarinnar, segir vinnu nefndarinnar hafa staðið yfir langt á þriðja ár. Hann segir endurupptökunefndina ekki hafa tekið skýrslur af fólki vegna málsins, allt slíkt hefur farið í gegnum settan ríkissaksóknara í málinu, Davið Þór Björgvinsson. „Ég held ég fari ekki að tjá mig um það,“ segir Björn þegar hann er spurður hvort einhverjar nýjar upplýsingar hafi komið fram sem nýst hafi endurupptökunefndinni.Frá meðferð málsins árið 1978.VísirFramburður Austfirðings skilaði engu Í desember síðastliðnum var greint frá því að lögreglan á Austurlandi hefði tekið skýrslu af karlmanni í nóvember sem taldi sig hafa upplýsingar varðandi málið sem gætu haft áhrif á það hvort nefndin ákveði að taka upp málið að nýju, en upplýsingarnar vörðuðu hvarf Geirfinns Einarssonar. Þeir Guðmundur og Geirfinnur voru alls ótengdir í lifanda lífi en málum þeirra var spyrt saman eftir dauða þeirra. Davíð Þór Björgvinsson, settur ríkissaksóknari vegna endurupptökubeiðni í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, lét nefndina vita af manninum sem vildi koma þessu upplýsingum á framfæri. Endurupptökunefndin fékk gögn sem vörðuðu vitnisburð mannsins í hendurnar en eftir yfirferð á þeim tilkynnti hún settum saksóknara að nefndin teldi ekki þörf á frekari skoðun á þeirri ábendingu, að sögn Björns. Björn segir ekkert hafa komið fram í máli mannsins sem gaf tilefni til frekari könnunar nefndarinnar.Málið er frá 1974.Vill ekki tjá sig um mennina tvo sem handteknir voru í fyrra Í júní síðastliðnum voru tveir karlmenn handteknir og yfirheyrðir vegna rannsóknar á þætti málsins sem varðar Guðmund Einarsson en þeir voru látnir lausir að lokinni yfirheyrslu. Björn vill ekki fara nánar út í hvað þar hafi komið fram og hvort það hafi nýst nefndinni. „Þetta verð menn bara að lesa,“ segir Björn og vísar þar til niðurstöðunnar sem birt verður á vef endurupptökunefndar á föstudag. Líkt og áður hefur komið fram þá hefur vinna nefndarinnar staðið yfir í á þriðja ár og segir Björn þetta hafa verið umfangsmikið verk. Spurður hvort þetta hafi verið með stærri verkefnum sem hann hafi tekið að sér yfir ævina segir Björn því fljótsvarað: „Já.“43 ár frá hvarfi Guðmundar og Geirfinns Guðmundar- og Geirfinnsmálið varðar mannshvörf sem bæði áttu sér stað árið 1974. Guðmundur Einarsson sást síðast í Hafnarfirði aðfaranótt 27. janúar 1974 eftir dansleik í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. Eiginkona Geirfinns Einarssonar sá hann síðast klukkan 22:30 í nóvember sama ár samkvæmt gögnum lögreglunnar í Keflavík. Næstu árin fór fram mikil rannsókn á málinu. Um sex árum frá hvarfi þeirra Guðmundar og Geirfinns voru þau Albert Klahn Skaftason, Erla Bolladóttir, Guðjón Skarphéðinsson, Kristján Viðar Viðarsson, Sævar Marinó Ciesielski og Tryggvi Rúnar Leifsson dæmd til fangelsisvistar Í Hæstarétti í febrúar árið 1980 vegna aðildar að dauða þeirra Guðmundar og Geirfinns. Sævar Marinó Ciesielski fékk lengsta dóminn, eða sautján ára fangelsisvist. Kristján Viðar var dæmdur í sextán ára fangelsi, Tryggvi Rúnar 13 ára fangelsi, Guðjón í tíu ára fangelsi, Erla í þriggja ára fangelsi og Albert Klahn í 12 mánaða fangelsi.
Tengdar fréttir Guðmundar- og Geirfinnsmálið: Tveir menn handteknir og yfirheyrðir Morðin voru framin árið 1974 en eru til rannsóknar nú að nýju. 15. júní 2016 07:36 Netflix fjárfestir í heimildarmynd um Guðmundar- og Geirfinnsmálið Myndin er sú fyrsta sem Netflix fjárfestir í á framleiðslustigi hérlendis. 9. júlí 2016 13:33 43 óupplýst mannshvörf síðan 1970: „Leit er ekki hætt fyrr en við getum ekki gert meira“ Aðalvarðstjóri segir óupplýst mannshvörf með erfiðari málum á borði lögreglu. Allir sem horfið hafa sporlaust undanfarna áratugi eru karlmenn. Við rifjum upp nokkur mannshvörf og eitt mál þegar maður sneri aftur, öllum að óvörum, eftir 12 ára útlegð. 16. janúar 2016 07:00 Endurupptökunefndin ætlar að ljúka störfum undir lok mánaðarins Ábending frá Austfirðingi hafði engin áhrif á niðurstöðu nefndarinnar. 10. febrúar 2017 10:22 Formaður endurupptökunefndarinnar: „Ábending sem var hluti af gögnunum“ Tveir menn handteknir og yfirheyrðir í tengslum við endurupptöku á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. 15. júní 2016 12:03 Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Innlent Fleiri fréttir Sjarmurinn af sérverslun lifi góðu lífi Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Sjá meira
Guðmundar- og Geirfinnsmálið: Tveir menn handteknir og yfirheyrðir Morðin voru framin árið 1974 en eru til rannsóknar nú að nýju. 15. júní 2016 07:36
Netflix fjárfestir í heimildarmynd um Guðmundar- og Geirfinnsmálið Myndin er sú fyrsta sem Netflix fjárfestir í á framleiðslustigi hérlendis. 9. júlí 2016 13:33
43 óupplýst mannshvörf síðan 1970: „Leit er ekki hætt fyrr en við getum ekki gert meira“ Aðalvarðstjóri segir óupplýst mannshvörf með erfiðari málum á borði lögreglu. Allir sem horfið hafa sporlaust undanfarna áratugi eru karlmenn. Við rifjum upp nokkur mannshvörf og eitt mál þegar maður sneri aftur, öllum að óvörum, eftir 12 ára útlegð. 16. janúar 2016 07:00
Endurupptökunefndin ætlar að ljúka störfum undir lok mánaðarins Ábending frá Austfirðingi hafði engin áhrif á niðurstöðu nefndarinnar. 10. febrúar 2017 10:22
Formaður endurupptökunefndarinnar: „Ábending sem var hluti af gögnunum“ Tveir menn handteknir og yfirheyrðir í tengslum við endurupptöku á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. 15. júní 2016 12:03