Fyrir hundrað árum voru konur kveikjan að rússnesku byltingunni Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 8. mars 2017 12:15 Vopnaður almenningur í febrúarbyltingunni 1917. Vísir/Getty
Rússneska byltingin hófst með mótmælum í Petrograd, eða Sankti Pétursborg eins og hún er kölluð í dag, þann 23. Febrúar árið 1917. Sá dagur fellur nú á 8. mars, ef farið er eftir gregorísku dagatali. Mótmælin voru í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Konur höfðu safnast saman á götum úti í Petrograd þann 8. mars 1917 til að mótmæla slæmum kjörum. Konurnar sem voru saman komnar voru úr öllum hópum samfélagsins, allt frá yfirstéttarkonum og yfir í unga nema. Rússneska byltingin hófst nefnilega með mótmælum kvenna, ekki rússneskra verkamanna. Þegar líða fór á daginn tók hópurinn að breytast. Konur sem störfuðu í verksmiðjunum bættust í hópinn auk karla. Kallað var eftir brauði og að Nikulás II. keisari yrði felldur. Seinni hluta dagsins höfðu 100 þúsund verkamenn lagt niður störf og til átaka kom við lögreglu. Þar með hófst febrúarbyltingin svokallaða. Daginn eftir höfðu 150 þúsund verkamenn lagt niður störf og gengu úr verkamannahverfum og að miðborginni. Á leiðinni voru rúður brotnar, búðir rændar og hestvögnum hvolft. Fólksfjöldinn var sagður samanstanda af „venjulegu fólki.“ Eftir örfáa daga voru nær allar verksmiðjur í borginni óstarfhæfar vegna þess að starfsmenn voru á götum úti að mótmæla og keisarinn kallaði herinn út til að hafa hemil á mótmælendum. Nikulás II. keisari.Vísir/GettySjö dögum seinna, þann 15. mars 1917, valdi keisarinn að afsala sér völdum sínum og hrökklaðist í útlegð ásamt fjölskyldu sinni, Romanov ættinni. Í kjölfarið tók bráðabirgðastjórn þingmanna og sovéta við og við tók tímabil sem einkenndist af óeirðum og óróleika. Bolsévikar gerðu verkamenn að hermönnum og úr varð rauði herinn. Vladimir Lenín fór svo fyrir bolsévikum í októberbyltingunni (sem hófst í nóvember samkvæmt gregorísku dagatali) ásamt Leon Trotsky. Í kjölfar seinni byltingarinnar varð Lenín þjóðarleiðtogi Rússa og árið 1922 urðu Sovétríkin til. Sagnfræðingar hafa löngum deilt um hvort rússneska byltingin hafi verið sjálfsprottin eða þaulskipulögð af uppreisnarmönnum, enda hafði bylting legið í loftinu lengi. Þó er ekki deilt um að mótmæli kvenna þann 8. mars var kornið sem fyllti mælinn. Leon Trotsky skrifaði seinna: „...Við gátum ekki ímyndað okkur að þessi kvennadagur myndi vera upphaf byltingarinnar. Spáð hafði verið fyrir um byltingu en dagsetning var ekki vituð. En að morgni, þrátt fyrir fyrirskipanir um annað, yfirgáfu konur sem unnu við vefnað verksmiðjur og sendu fólk til að kalla eftir stuðningi við verkfallið... sem leiddi til fjöldaverkfalls... allir fóru út á götur.“
Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Lægð stjórnar veðrinu um helgina Veður Fleiri fréttir Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Sjá meira