Viðurkennir að hafa myrt frönsku fjölskylduna atli ísleifsson skrifar 6. mars 2017 09:13 Pascal, Brigitte, Sebastien og Charlotte Troaded bjuggu í Nantes. Vísir/AFP
Franskir fjölmiðlar segja að maður sem tengist Troadec-fjölskyldunni fjölskylduböndum hafi viðurkennt að hafa myrt fjölskylduna sem hefur verið saknað síðan um miðjan febrúar. Leitin að Troadec-hjónunum, Pascal og Brigitte, og börnunum Sebastien, 21 árs, og Charlotte, átján ára, hefur vakið mikla athygli í Frakklandi síðustu vikur. Fyrrverandi mágur Pascal, sem nefndur er Hubert C, hefur nú viðurkennt fyrir lögreglu að hafa drepið fjölskylduna vegna erfðadeilna um gullstangir. Le Parisien segir frá því að talið sé að fyrrverandi mágur Pascal hafi banað meðlimi fjölskyldunnar á heimili þeirra í Nantes, en lífsýni af manninum hafa fundist á heimilinu. Ekki er ljóst hvort að Hubert C hafi greint lögreglunni frá því hvar lík Troadec-fjölskyldunnar séu niður komin.Bíll Sebastien fannst síðastliðinn fimmtudag í hafnarbænum St Nazaire.Vísir/AFPHandtekin í Brest Hubert C var handtekinn ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni Lydie, systur Pascal, í Brest, þó að ekki liggi fyrir hver þáttur hennar í málinu sé. Hlutir í eigu Troadec-fjölskyldunnar fundust í fórum Hubert C, en síðast sást til fjölskyldunnar þann 16. febrúar. Hinn 46 ára Hubert C hafði áður varið yfirheyrður af lögreglu en sagst ekki hafa séð Troadec-fjölskylduna í nokkur ár. Lífsýni Hubert C fundust á glasi í vaski á heimili Troadec-fjölskyldunnar og einnig í bíl Sebastien sem fannst síðastliðinn fimmtudag í hafnarbænum St Nazaire. Degi fyrr höfðu skilríki og buxur í eigu Charlotte fundist í skóglendi nærri Brest. Við leit á heimili Troadic-fjölskyldunnar í síðustu viku höfðu fundist blóð úr Pascal, Brigitte og Sebastien, en ekki Charlotte. Fannst blóðið á síma Sebastien og úri Brigitte og virtist sem að einhver hafi reynt að hreinsa blóðblettina.
Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Innlent Fleiri fréttir Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Sjá meira