Innlent

Handtekinn vegna heimilisofbeldis í Hafnarfirði

Birgir Olgeirsson skrifar
Vísir/Hari
Á sjötta tímanum í morgun barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um heimilisofbeldi og líkamsárás í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en þar segir að karlmaður hafi verið handtekinn vegna málsins og vistaður í fangageymslu lögreglunnar vegna frekari rannsóknar málsins.

Tólf ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ýmist akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.

Þá voru eigendur 15 ökutækja sektaðir vegna stöðubrota á höfuðborgarsvæðinu í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×