Innlent

Sofandi í strætó og viðurkenndi rán

Samúel Karl Ólason skrifar
Þjófnaður var tilkynntur í verslun í Kringlunni sem og í tveimur verslunum í Smáralind.
Þjófnaður var tilkynntur í verslun í Kringlunni sem og í tveimur verslunum í Smáralind. Vísir/Pjetur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í dag tilkynningu um mann sem svaf ölvunarsvefni í strætó. Þegar lögregluþjóna bar að garði sáu þeir að þar var á ferðinni par í annarlegu ástandi. Við leit á þeim fannst hnífur og í kjölfarið viðurkenndi maðurinn að þau hafi verið viðriðin rán í Mjódd í morgun.

Þriðji maðurinn sem kom að ráninu var handtekinn seinna í dag, eftir að hann rændi apótek í austurbænum.

Þá barst lögreglunni tilkynningar um þjófnað og innbrot víða um höfuðborgarsvæðið. Þjófnaður var tilkynntur í verslun í Kringlunni sem og í tveimur verslunum í Smáralind. Þar að auki bárust tilkynningar um að brotist hefði verið inn í tvo bíla í dag. Klink var tekið úr öðrum þeirra og fartölva og úr úr hinum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×