Innlent

Bílbruni við Jökulsárlón

Gissur Sigurðsson skrifar
Frá Jökulsárlóni.
Frá Jökulsárlóni. Visir/Valli
Bíll brann til kaldra kola á þjóðvegi 1 skammt frá Jökulsárlóni undir kvöld í gær en ökumanninn sakaði ekki. Maðurinn varð fyrst var við torkennilega lykt, stöðvaði bílinn og opnaði vélarhlífina, en allt virtist vera með eðlilegum hætti. Hann hélt þvi áfram en þá gaus upp eldur aftur í bílnum og forðaði ökumaðurinn sér þá út.

Þegar slökkvilið kom á vettvang var bíllinn orðinn alelda og tók 20 mínútur að slökkva í flakinu. Ekki er vitað hvað olli íkveikjunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×