Thierry Henry útlokar ekki að hann taki við af Wenger Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2017 11:00 Thierry Henry og Arsene Wenger. Vísir/Getty
Margir hafa séð Thierry Henry fyrir sér í knattspyrnustjórastól Arsenal í framtíðinni og orðrómurinn hefur vaxið í takt við óánægju stuðningsmanna með störf knattspyrnustjórans Arsene Wenger. Thierry Henry er einn besti leikmaðurinn í sögu Arsenal, sá markahæsti frá upphafi og lykilmaður í síðasta meistaraliði liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Thierry Henry er orðinn 39 ára gamall og er í dag aðstoðarþjálfari belgíska landsliðsins en hann vinnur þar með landsliðsþjálfaranum Roberto Martínez. Arsenal hefur nú tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni auk þess að detta skammarlega út úr Meistaradeildinni 10-2 samanlagt á móti Bayern München. Samningur Arsene Wenger rennur út í vor en ekkert fararsnið virðist vera á franska stjóranum þrátt fyrir háværar kröfur stórs hóps stuðningsmanna um það. Thierry Henry lék í átta ár undir stjórn Arsene Wenger hjá Arsenel og Henry talar undir rós þegar kemur að hugleiðingum um framtíðarmöguleika hans hjá Arsenal. „Þetta ræðst ekki á mér og það þarf að bera virðingu fyrir ákveðnum hlutum. Þetta er samt félagið sem á hjarta mitt,“ sagði Thierry Henry í viðtali á frönsku sjónvarpstöðinni Canal Plus en ESPN segir frá. Þegar gengið var á hann um hvort hann sé maðurinn til að taka við af Wenger. „Ég veit það ekki,“ svaraði Henry en hann útilokar það ekki. „Ég heyri nafnið mitt nefnt sem eftirmann Wenger. Það er bara erfitt fyrir mig að tala um þetta því ég ber svo mikla virðingu fyrir því sem Wenger hefur gert,“ sagði Henry. „Er ég tilbúinn? Ég veit það ekki og það veit enginn. Ég þarf að læra inn á þetta starf. Ég hef engin ákveðin markmið í huga. Ég myndi elska að verða stjóri í framtíðinni en eins og er þá er ég ennþá að læra inn á þetta,“ sagði Henry.
Enski boltinn Mest lesið Heimir skildi stórt nafn eftir heima og Írar fagna Fótbolti Uppgjörið: Omonia - Víkingur 4-0 | Seig á ógæfuhliðina í seinni hálfleik Fótbolti Guðjohnsen snýr aftur á Brúna: „Sérstakt fyrir mig og pabba“ Fótbolti Bruno sá aftur rautt en Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma Fótbolti Í beinni: Tindastóll - KR | KR-ingar mæta aftur til leiks Körfubolti Maradona verður grafinn upp Fótbolti „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Handbolti Í beinni: FH - Valur | Stórleikur á Hlíðarenda Handbolti Frumsýna nýja Evróputreyju Fótbolti Finnur til með Ten Hag og býður honum í glas Fótbolti Fleiri fréttir Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Sjá meira