Ashley Cole hlær að óförum Arsenal í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2017 22:30 Ashley Cole Vísir/Samsett/Getty
Ashley Cole átti á sínum tíma mjög góða tíma hjá Arsenal en yfirgaf félagið í eintómum leiðindum fyrir rúmum áratug síðan. Cole fór til Chelsea og bæði hann og Jose Mourinho, stjóri Chelsea, voru sektaðir fyrir ólögleg samskipti milli stóra og samningsbundins leikmanns. Cole hafnaði 55 þúsund punda vikulaunum hjá Arsenal en samdi þess í stað við Chelsea og spilaði fyrir Jose Mourinho. Arsenal fékk fimm milljónir punda og William Gallas í staðinn fyrir Ashley Cole árið 2006. Ashley Cole er nú orðinn 36 ára gamall og spilar með LA Galaxy í Bandaríkjunum. Hann spilaði í tvö ár með Roma eftir að hann yfirgaf Chelsea árið 2014. „Ég átti góðan tíma hjá Arsenal og auðvitað sakna ég leikmannanna sem spiluðu þar með mér. Ég hélt bara áfram mínu striki og vann alla titla sem voru í boði. Ég get því ekki sagt eftir að ég sjái eftir því í dag að hafa yfirgefið Arsenal,“ sagði Cole í viðtali við ITV. Telegraph segir frá. Ashley Cole vann tvo meistaratitla með Arsenal og varð þrisvar bikarmeistari. Arsenal hefur ekki unnið enska meistaratitilinn eftir að hann fór en Cole varð enskur meistari með Chelsea árið 2010. Hann vann líka Meistaradeildina en hana hefur Arsenal aldrei unnið. Cole var gestur í spjallþætti á ITV og var í kjölfarið spurður af grínistanum Romesh Ranganathan hvort hann hefði ekki lúmskt gaman af óförum Arsenal-liðsins í dag. Arsenal hefur unnið enska bikarinn eftir að hann fór en ekki verið nálægt sigri í ensku deildinni. Nú er liðið í hættu á að missa af Meistaradeildinni á næstu leiktíð. „Ef ég segi alveg eins og er þá hlæ ég oft með sjálfum mér,“ sagði Cole og brosti. Hann verður samt alltaf tengdur Arsenal enda lykilmaður í 2003-04 liðinu sem tapaði ekki leik á tímabilinu. „The Invincibles“ eða „Hinir ósigrandi“ unnu 26 leiki og gerðu 12 jafntefli í leikjunum 38. „Það var kannski vafasamt hvernig ég fór frá Arsenal en þeir sýndu mér ekki nægilega virðingu. Ég get samt líka tekið eitthvað af sökinni sjálfur. Ég get um leið kennt mörgum aðilum um hvernig fór og nú eru liðin tíu ár, sagði Cole.
Enski boltinn Mest lesið Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Körfubolti Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Enski boltinn „Ennisbandið var slegið af honum“ Körfubolti Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 „Fannst við spila fullkominn fyrri hálfleik“ Fótbolti Bruno sá aftur rautt en Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Handbolti „Þarft að vera sami leikmaður og á Íslandi og bæta tuttugu prósentum ofan á það“ Fótbolti Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Handbolti Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Handbolti Fleiri fréttir Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Sjá meira