„Við vorum að fagna þessu í síðustu viku, eða því að við erum komin með þessa tveggja prósenta markaðshlutdeild. Við erum ennþá einn af minni aðilunum á markaðnum en erum allavega komin á blað,“ segir Sigurður Kjartan í samtali við Markaðinn.
Tvær verksmiðjur
Sigurður, eða Siggi, hefur búið á Manhattan frá árinu 2002 en skyrframleiðslan byrjaði sem áhugamál tveimur árum síðar. Í forsíðuviðtali í Markaðnum í janúar 2014 lýsti frumkvöðullinn því hvernig fyrirtækið hefði vaxið og dafnað út frá uppskrift að skyri frá árinu 1963 sem móðir hans sendi honum í faxi frá Íslandi. Áður en skyrframleiðslan hófst starfaði Sigurður við fyrirtækjaráðgjöf hjá Deloitte Consulting á Wall Street en sagði upp þegar skyráhuginn kviknaði. Í kjölfarið kom hann framleiðslunni af stað á mjólkurbúi í uppsveitum New York og vörurnar enduðu í hillum verslana á borð við Whole Foods og Target. Í dag selur The Icelandic Milk and Skyr Corporation um 30 vörutegundir, er með um 40 starfsmenn í vinnu og mörg hundruð undirverktaka sem framleiða vörurnar.
„Við erum núna með tvær verksmiðjur. Sú stærri er í New York-ríki en svo erum við einnig með mikla framleiðslu í Wisconsin þar sem við byrjuðum fyrir um tveimur til þremur árum. Svo erum við með vöruhús í Illinois þaðan sem við dreifum vörunum og tvær minni verksmiðjur sem við notum minna. Ég er með starfsfólk þar í gæðamálum sem er hluti af þessum 40 en þeir sem vinna á framleiðslulínunum vinna ekki fyrir okkur. Verksmiðjan í New York framleiðir nánast eingöngu fyrir okkur og þar eru um 200 manns í dag.“

Fyrirtæki Sigurðar samdi í september í fyrra við Starbucks og nú er hægt að kaupa Siggi’s-vörur í um sjö þúsund verslunum kaffihúsakeðjunnar í Bandaríkjunum. Á einu ári, eða frá 2015 til ársloka 2016, fjölgaði verslununum sem selja skyrið og aðrar mjólkurvörur fyrirtækisins úr 15 þúsund í 25 þúsund. Fjölgunina má því einnig rekja til annarra sölusamninga eins og þess við stórmarkaðinn Publix í Flórída sem rekur yfir eitt þúsund verslanir.
„Það var mikill áfangi að fara inn í sjö þúsund Starbucks og var stór biti af söluaukningu okkar í fyrra. Við byrjuðum að senda til þeirra í október og nóvember en við höfðum átt í óformlegum viðræðum við þá lengi. Við höfum aukið úrvalið og erum komin með vel yfir 30 vörutegundir núna. Sumt af því er sama varan en í öðrum pakkningum og svo höfum við aukið úrval af skyri með hærra fituhlutfall, eða rjómaskyr,“ segir Sigurður.
„Whole Foods er ennþá mjög stór viðskiptavinur og var fyrsti stóri kúnninn minn. Þetta er svo gríðarlega stór markaður og þó ég sé að verða búinn að vera í þessu í um ellefu ár þá er ég einungis kominn með tvö prósent af markaðnum. Það væri því gaman að halda áfram og ná inn í fleiri verslanir og auka vöruúrvalið í hverri verslun.“
Ætla ekki í útflutning
Tölur Nielsen yfir markaðshlutdeild eru gefnar út mánaðarlega. Þær byggjast á sölutölum úr mörgum af stærstu matvörukeðjum Bandaríkjanna og eru að sögn Sigurðar sá mælikvarði sem hann og stjórnendur fyrirtækja í samkeppni við framleiðsluvörur hans horfa hvað mest til. Að sögn Sigga byggja markaðsrannsóknir Nielsen á sölutölum sem nema samtals rúmum fjórum milljörðum dollara eða um 439 milljörðum króna.
Aðspurður hvort áform séu um útflutning á vörunum til annarra landa segir Siggi að hann og aðrir stjórnendur fyrirtækisins horfi einungis til Bandaríkjanna. Enda sé þar nóg eftir.
„Við einblínum eingöngu á Norður-Ameríku en höfum skoðað Kanada en það er ennþá svo erfitt. Þeir eru með innflutningskvóta og það eiginlega þýðir ekkert að fara þangað nema maður sé með aðskilda framleiðslueiningu í Kanada. Það hefur gengið mjög vel í Bandaríkjunum.“
Í desember 2013 var tilkynnt að svissneski mjólkurframleiðandinn Emmi Group hefði eignast fjórðungshlut í fyrirtæki Sigurðar. Kaupverðið var ekki gefið upp en í fréttatilkynningu Emmi Group kom fram að sala á vörum Sigurðar ætti að öllum líkindum eftir að skila sautján milljónum Bandaríkjadala á árinu 2013. Því er ljóst að veltan hefur aukist mikið á einungis þremur árum. Hluthafahópurinn hefur að sögn Sigga ekki tekið neinum breytingum síðan Emmi Group kom inn og svissneska fyrirtækið er því enn eini stóri fagfjárfestirinn sem á hlut í The Icelandic Milk and Skyr Corporation. Hin 75 prósentin eru því enn í eigu Sigurðar og ættingja hans, vina og annarra sem þeim tengjast.
Á nóg eftir
Skyrið frá Siggi’s er nú fáanlegt í þrettán bragðtegundum en fyrirtækið framleiðir einnig aðrar mjólkurvörur eins og hefðbundnara jógúrt. Áherslan hefur alltaf verið lögð á vörur sem innihalda lítinn eða engan sykur. Sigurður er löngu orðinn þekkt nafn í bandaríska jógúrtbransanum og tekur undir fullyrðingu blaðamanns um að hann sé andlit fyrirtækisins út á við. Viðtöl í sjónvarpi, dagblöðum og tímaritum séu góð leið til að auglýsa fyrirtækið og koma boðskapnum um heilsusamlegri mjólkurvörur áleiðis.
„Fyrir utan þær vörur sem við höfum selt lengi og víða erum við með fullt af öðrum vörum sem seljast vel en eru ekki endilega komnar í fulla dreifingu. Við eigum því nóg eftir.“