Sport

Freydís Halla og Sturla Snær Íslandsmeistarar í stórsvigi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Freydís Halla Einarsdóttir og Sturla Snær Snorrason unnu stórsvigið.
Freydís Halla Einarsdóttir og Sturla Snær Snorrason unnu stórsvigið. Mynd/Skíðasamband Íslands
Freydís Halla Einarsdóttir og Sturla Snær Snorrason tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í stórsvigi en þetta var fyrsta alpagreinin sem keppt var í á Skíðamóti Íslands sem fram fer á Akureyri um helgina.

Aðstæður á Hlíðarfjalli á Akureyri voru góðar en veður var mjög gott og snjórinn í brautinni hélt vel. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Skíðasambands Íslands.

Keppnin í kvennaflokki var spennandi. Landsliðskonurnar Freydís Halla Einarsdóttir og Helga María Vilhjálmsdóttir háðu einvígi um Íslandsmeistaratitilinn og að lokum varð Freydís Halla hlutskarpari.

Baráttan um þriðja sæti var ekki minni en eftir fyrri ferðina áttu fimm stelpur raunhæfan möguleika á að ná því. Andrea Björk Birkisdóttir átti frábæra seinni ferð og náði þriðja sætinu eftir að hafa verið í því fimmta að lokinni fyrri ferðinni.

Í karlaflokki var Sturla Snær Snorrason með algjör yfirburði og sigraði með rúmlega tveimur og hálfri sekúndu. Í öðru sæti varð Jón Gunnar Guðmundsson og þriðji var síðan  Sigurður Hauksson.

Mikil samkeppni var um annað og þriðja sætið en eftir fyrri ferðina voru sjö karlar sem áttu möguleika og mikil spenna var í seinni ferðinni.

Íslandsmeistaratitlar í stórsvigi 2017:

Konur

1. Freydís Halla Einarsdóttir

2. Helga María Vilhjálmsdóttir

3. Andrea Björk Birkisdóttir

18-20 ára stúlkur

1. Andrea Björk Birkisdóttir

2. Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir

3. Soffía Sóley Helgadóttir

16-17 ára stúlkur

1. Harpa María Friðgeirsdóttir

2. Katla Björg Dagbjartsdóttir

3. María Finnbogadóttir

Karlar

1. Sturla Snær Snorrason

2. Jón Gunnar Guðmundsson

3. Sigurður Hauksson

18-20 ára drengir

1. Jón Gunnar Guðmundsson

2. Sigurður Hauksson

3. Björn Ásgeir Guðmundsson

16-17 ára drengir

1. Georg Fannar Þórðarson

2. Jökull Þorri Helgason

3. Axel Reyr Rúnarsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×